23.09.2010
Menningar, æskulýðs, velferðar-og jafnréttisnefnd 01. fundur
Fyrsti fundur menningar, æskulýðs, velferðar- og jafnréttisnefndar Skeiða-og Gnúpverjahrepps 2010 til 2014 haldinn í Árnesi 25. ágúst 2010.
Mættir eru Sigrún Guðlaugsdóttir, Þóra Gylfadóttir, Daði Viðar Loftsson, Jóhanna Lilja Arnardóttir, og Gunnar Örn Marteinsson oddviti sem ritaði fundargerð.
1. Gunnar Örn setti fundinn og stjórnaði kosningu á formanni nefndarinnar sem var kosin Sigrún Guðlaugsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir var kjörin varaformaður Daði Viðar Loftsson var kjörinn ritari. Nýkjörinn formaður tók við fundarstjórn.
2. Rætt um verksvið nefndarinnar og erindisbréf.
3. Ákveðið að næsti fundur nefndarinnar verði haldinn í bókasafninu, Brautarholti 16. september.
4. Fundi slitið kl. 22:00




