Skólanefnd 02. fundur grunnskóli 10.08.
Skólanefndarfundur Skeiða og Gnúpverjahrepps þann 10. ágúst 2010 í Þjórsárskóla kl. 20:30. Nr. 2.
Mættir voru: Halla Sigga Bjarnadóttir, Lára Bergljót Jónsdóttir, Helga Kolbeinsdóttir og Jón Vilmundarson. Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra, Jenný Jóhannsdóttir fulltrúi kennara, Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri og Gunnar Örn Marteinsson sveitarstjóri.
1. Skýrsla síðasta skólaárs. Ingibjörg María skólastjóri fór yfir hana. Samþykkt.
2. Áætlun næsta árs. Ingibjörg María kynnti hana.
3. Reglur um skólavistun. Farið yfir þær og samþykkt að breyta 9. grein varðandi breytingar á vistunartíma. Þ.e. að sækja þarf um breytingar á vistunartíma með mánaðar fyrirvara til skólastjóra.
4. Skólaakstur. Sömu aðilar verða með aksturinn og í fyrra.
5. Fundartímar í vetur. Fimmtudagskvöld henta best. Fundir verða þá 30. Sept., 25. Nóv., 24. Feb. og 28. Apríl.
6. Önnur mál. Rætt um skóladagatal.
Fundi slitið kl. 10:15.




