Leikskólamál 01. fundur 01.07.2010
Fundur skólanefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Leikskólamál
1.fundur 01.07.10. Haldinn í Leikholti kl. 20:30.
Á fundinn mætti skólanefnd, Jón Vilmundarson, Ingvar Hjálmarsson, Lára B. Jónsdóttir og Halla S. Bjarnadóttir. Auk þeirra Vilborg M. Ástráðsdóttir leikskólastjóri, Sigríður B. Gylfadóttir fulltrúi starfsmanna, Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.
Jón kallar eftir athugasemdum við fundarboð, engar athugasemdir gerðar. Varaformaður kosinn Ingvar Hjálmarsson og ritari Lára B. Jónsdóttir.
1. Erindisbréf skólanefndar borið fram. Uppfæra þarf erindisbréfið til samræmis við ný leik- og grunnskólalög. Skólastjórnendum og formanni skólanefndar falið að gera tillögu að nýju erindisbréfi.
2. Ársskýrsla Leikholts 2009-2010 kynnt af Vilborgu leikskólastjóra. Skólanefnd óskar Helgu Guðlaugsdóttur til hamingju með áfangann, en hún útskrifaðist sem leikskólakennari í vor, og fagnar metnaðarfullu og faglegu starfi leikskólans.
3. Skýrsla um sérkennslu í Leikholti 2009-2010 kynnt af Vilborgu.
4. Staða sérkennslustjóra. Leikskólastjóri óskar eftir aukningu á stjórnunarhlutfalli hjá sérkennslustjóra og hlutfallið verið skilgreint eftir fjölda barna í leikskólanum og miðað við 0,5% pr. barn. Stöðuhlutfall sérkennslustjóra haust 2010 fer úr 10% í 15% miðað við 30 börn í leikskólanum. Skólanefnd samþykkir þessa tillögu.
5. Kynning á samstarfi við foreldrafélag – haust 2010. Vilborg lýsir yfir ánægju sinni með hvað foreldrafélagið hefur staðið sig vel og hlakkar til meira samstarfs næsta vetur.
6. Önnur mál.
Hugmynd kom fram að samnýta sérkennara í Leikholti og Þjórsárskóla.
Fundi slitið kl. 21:30.




