Grunnskólamál 43. fundur 15.04.2010
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Grunnskólamál
Fundur nr. 43
Haldinn í Þjórsárskóla 15. Apríl 2010 kl. 21:30
Á fundinn mætt skólanefnd, Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Hjálmarsson, Jóhannes Sigurðsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson. Auk þeirra: Bente Hansen fulltrúi kennara. Helga Kolbeinsdóttir fulltrúi foreldra. Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.
Athugasemdir við fundarboð. Engar athugasemdir.
1. Skóladagatal. Skóladagatal er lagt fram á fundinum og hefur verið samræmt Flúðaskóla eftir bestu getu. Einn foreldradagur er ekki sameiginlegur. Annað er samræmt milli skólanna. Skóladagatal samþykkt.
2. Áherslur næsta skólaár. Til kynningar. Áherslurnar verða þær sömu og verið hefur í ár. Það er áfram kór við skólann, það verður lagt upp úr skógarkennslu og útinámi nemenda, ferðir í samræmi við áherslur s.s. dvöl í skóginum, vetraríþróttir og fleira sem tengist námi og samstarfi skóla á svæðinu. Samkennsla hjá 1. og 2. bekk, 3. og 4. bekk og í 6. og 7. bekk. Áhugi á að vinna með/læra af björgunarsveitinni hvað varðar búnað og útiveru. Hugmynd um að heimsækja bændur og aðra sem reka fyrirtæki hér í nærsamfélaginu nemendum til kynningar.
3. Starfsmannamál. Hafdís kemur inn úr barneignarleyfi í sína stöðu og Eygló kemur aftur úr leyfi en hefur óskað eftir að fá minna starfshlutfall. Ráðningu Katrínar og Sólrúnar er lokið í vor, þ.e. vor 2010. Lítil sem enginn verður breyting á skólaakstri næsta skólaár.
4. Viðhald húsnæðis. Það þarf að huga að nauðsynlegu viðhaldi t.d. vegna leka og fl. Skólanefnd hvetur til þess að hugað verði að nauðsynlegu viðhaldi í sumar.
5. Viðhald lóðar. Viðhaldi þarf að sinna í sumar þannig að lóðin verði snyrtileg. Skólanefnd hvetur til þess að hugað verði að nauðsynlegu viðhaldi í sumar.
6. Tölvumál skólans. Samningur um leigu á 15 fartölvum rennur út í október. Skólastjóra falið að ganga í málið.
7. Mötuneyti. Samningur við Bergleif rennur út í sumar. Skólanefnd leggur til að matráður verði ráðin til eins árs, þ.e. næsta skólaár 2010 – 2011.
8. Önnur mál.
a. Heildstætt mat á skólastarfi – fundur á vegum SASS.
b. Fundargerð skólaráðs – til kynningar.
c. Skýrsla um samræmd próf komin inn á www.namsmat.is
Fundið slitið kl. 23.20




