Leikskólamál 42. fundur 15.04. 2010
Skeiða- og Gnúpverjahreppur
Leikskólamál
Fundur nr. 42
Haldinn í Þjórsárskóla 15. apríl 2010. kl. 20:30
Á fundinn mætt skólanefnd, Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Hjálmarsson, Jóhannes Sigurðsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson.
Auk þeirra: Vilborg Ástráðsdóttir leikskólastjóri. Matthildur Vilhjálmsdóttir fulltrúi starfsfólks. Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.
Engar athugasemdir við fundarboð
1. Drög að skóladagatali 2010 – 2011. Umræður um hvort hægt sé að endurskoða sumarfrí starfsfólks leikskólans á næsta starfsári, þ.e. 2011 - 2012 til þess að koma á móts við foreldra. Umræður um starfsdaga í leikskólanum og samþykkt að athuga hvort henti betur hálfur dagur eða heill. Leikskólastjóra falið að gera könnun í samráði við foreldrafélagið.
Skóladagatalið samþykkt með fyrirvara um að Haustþing leikskólakennara gæti verið seinkað um viku, þ.e. að í stað þess að vera 24. september verði þingið 1. október 2010.
2. Drög að ársáætlun 2010 – 2011. Ákveðið að bæta við heimsókn í sauðburð í maí. Ársáætlun samþykkt með breytingum.
3. Staða sérkennslumála. Til kynningar: Farið yfir stöðu sérkennslumála í leikskólanum og starf sérkennslustjóra.
4. Mat á leikskólastarfi. Til kynningar: Leikskólastjóri á Suðurlandi og leikskólastjóraráðgjafi Skólaskrifstofu Suðurlands hafa í vetur unnið að heildstæðu mati á leikskólastarfi. Þessi vinna hófst í kjölfar nýrra laga (2009) um leikskólann þar sem m.a. er kveðið fastar á um mat á leikskólastarfi.
Matið er þrenns konar, í fyrsta lagi innra mat á leikskólastarfi sem allt starfsfólk leikskóla svarar, í öðru lagi mat foreldra á starfinu og í þriðja lagi mat barna á leikskólastarfinu.
5. Önnur mál.
Umræður um umsóknartíma leikskólabarna í Leikholt.
Aðalbók 2009 lögð fram og kynnt.
Erindisbréf til leikskólastjóra verður afgreitt á næsta fundi.
Fundi slitið kl. 21:35




