Bókasafnsnefnd 09. fundur 25.10.2009
Fundargerð nr. 09
Fundur hjá Bókasafnsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps sunnudaginn 25. október 2009.
Haldinn í bókasafninu Brautarholti kl. 21:00
Mættir: Bjarni Gunnlaugur Bjarnason, Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Halla Guðmundsdóttir, Þorbjörg Halldórsdóttir og Jóhanna Lilja Arnardóttir, sem jafnframt ritaði fundargerð.
1. Þorbjörg kom með þá hugmynd um að hafa bókamarkað laugardaginn 7. nóvember n.k. Nefndin samþykkir það og felur safnverði og formanni nefndar að útfæra það nánar. Jafnframt kemur til greina að hafa einnig bókamarkað á jólabasar Kvenfélags Skeiðahrepps.
2. Um leið og Bókatíðindi berast mun formaður boða næsta fund nefndar til að undirbúa bókakaup.
3. Að sögn Þorbjargar gengur skráning bóka ágætlega. Rúmlega 4.600 bækur eru nú þegar skráðar. Þorbjörg mun taka saman skýrslu um safnið og setja í fréttabréf Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
4. Stefnt er að því að fá rithöfund í heimsókn á safnið fyrir jólin.
Fleira ekki gert,
Fundi slitið klukka 21:45




