Bókasafnsnefnd 08. fundur 27.01.2009
Fundargerð nr. 08
Bókasafnsnefndar Skeiða- og Gnúperjahrepps
1. fundur bókasafnsnefndar árið 2009
haldinn í bókasafninu í Brautarholti 27. janúar klukkan 21:30.
Mættir: Halla Guðmundsdóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason, Bjarni Ófeigur Valdimarsson, Jóhanna Lilja Arnardóttir og Þorbjörg Halldórsdóttir

1. Farið yfir drög að erindisbréfi og gerðar athugasemdir (sjá fylgiskjal)
2. Nefndi óskar eftir fjárhagsáætlun bókasafnsins.
3. Nefndin lýsir yfir ánægju sinni með reglubundnar heimsóknir leik- og grunnskóla í safnið en bendir á að starfsmaður safnsins er þá jafnframt að sinna kennslu í grunnskólanum. Þess vegna þykir nefndinni eðlilegt að kostnaður sem af því hlýst verði færður á viðeigandi stofnun.
4. Þorbjörg sagði frá því að þessa dagana er verið að opna útlánaþátt Gegnis þannig að nú er öll skráning að verða rafræn.
5. Jóhanna Lilja Arnardóttir er kosinn ritari nefndarinnar.
Fleira ekki gert
Fundi slitið kl. 23:00