486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.
05.02.2010

Bókasafnsnefnd 07. fundur 26.11.2008

Fundargerð  nr. 07

Bókasafnsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Bókasafnsnefnd hittist ásamt forstöðumanni 26. Nóv. 2008.  Mætt voru Þorbjörg Halldórsdóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason, Halla Guðmundsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir og Bjarni Valdimarsson.

Farið yfir Bókatíðindi og gerðar tillögur að bókakaupum.  Forst.maður er í sambandi við Bókaverslunina á Selfossi, sem býður mjög góð kjör.  Gengið er út frá svipuðum bókakaupum og í fyrra.


Forst.maður sagði frá því að skráning hefur gengið vel, og er stefnt að því að lána út eftir hinu nýja tölvukerfi, Gegni, um áramótin.  Einnig að Áslaug Bjarnadóttir bókavörður í hálfu starfi í Hrunamannahreppi og Þorbjörg hyggja á samvinnu.


Ítrekuð nauðsyn þess að bókasafnsnefnd verði fengið erindisbréf,svo og að starfslýsing forstöðumanns sé skýr og gengið verði frá því hver á að þrífa húsið.  Einnig eru óunnin ýmis viðvik innanhúss, sem beðið hefur verið eftir lengi og mun formaður ræða það við sveitarstj.


Rætt um ánægjulega „Rökkurstund“ og útkomu bókar Jóns í Vorsabæ um Skeiðahrepp og hugsanlega aðkomu safnsins á kynningu á henni, en ekkert ákveðið þar um.

hg

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar