Bókasafnsnefnd 06. fundur 11.03.2008
Fundargerð nr. 6
Bókasafnsnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Fundur haldinn 11. mars 2008, kl. 20:30, í húsnæði bókasafnsins í Brautarholti.
Mættir voru: Bjarni Ó. Valdimarsson, Halla Guðmundsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason og Þorbjörg Halldórsdóttir.
1. Skipulagning bókasafnsins
Nú þegar er byrjað að setja upp gömlu hillurnar og virðist vera
að þær nýtist mjög vel. Þó er ljóst að það þarf að kaupa til
viðbótar fjórar frístandandi hillur sem ekki eru til úr gömlu söfnunum.
Hillur þessar yrðu settar í norðurenda hússins, samkvæmt teikningu bókasafnsfræðings. Nefndin felur bókasafnsfræðingi að leita eftir nokkrum tilboðum í þannig hillur og afla sér upplýsinga um það sem gæti staðið okkur
til boða.
Mikilvægt er að hlutirnir gangi hratt og vel og tilhlökkunarefni að eignast fyrirmyndar aðstöðu fyrir bókasafn, menningar- og félagsstarf sveitarinnar.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 21:40




