05.02.2010
Bókasafnsnefnd 05. fundur 19.02.2008
Fundargerð nr. 5
Bókasafnsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Fundur haldinn 19. febrúar 2008, kl. 20:30, í tilvonandi húsnæði bókasafnsins í Brautarholti.
Mættir voru: Bjarni Ó. Valdimarsson, Halla Guðmundsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason og Þorbjörg Halldórsdóttir.
1. Skoðaðar teikningar af safninu. Ákveðið að leggja áherslu á að byrja sem fyrst að koma upp hillum og bókum. Byrjað í norðurenda um leið og rýmið verður klárt.
Áhersla lögð á að nota allar eldri hillur, eins og kostur er, og skoða eftir það hverju þarf að bæta við og kaupa inn.
2. Nefndin kallar eftir erindisbréfi.
Fleira ekki gert.
Fundi slitið kl. 21:50




