486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
05.02.2010

Bókasafnsnefnd 04. fundur 27.11.2007


Fundargerð nr. 4


 Bókasafnsnefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Fundur haldinn 27. nóvember 2007, kl. 20:30, í tilvonandi húsnæði bókasafnsins í Brautarholti.

Mættir voru: Bjarni Ó. Valdimarsson, Halla Guðmundsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, og Þorbjörg Halldórsdóttir, nýráðinn starfsmaður lestrarfélagsins
 
1. Ákveðið að notað verði nafnið „Lestrarfélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps“

2. Fjallað um húsnæðið Umræður um skipulag innandyra. Halla, Þorbjörg, Sigurður sveitarstjóri og Páll smiður ætla að hittast 29. næstkomandi og ræða málin betur.

3. Bókakaup. Rætt um tilhögun og tilvonandi samvinnu við Þjórsárskóla.

4. Valdar bækur til innkaupa.

 

Fleira ekki gert.

Fundi slitið kl. 23:00

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar