486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.
05.02.2010

Bókasafnsnefnd 03. fundur 24.09.2007


Fundargerð nr. 3


Bókasafnsnefnd Skeiða og Gnúpverjahrepps

Fundur haldinn 24. september 2007, kl. 20:30, í tilvonandi húsnæði bókasafnsins í Brautarholti.

Mættir voru: Bjarni Ó. Valdimarsson, Árdís Jónsdóttir, Halla Guðmundsdóttir, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason, Gunnar Örn Marteinsson, oddviti og Sigurður Jónsson, sveitarstjóri.

Í upphafi lýsti Árdís megnri óánægju sinni með þá ráðstöfun að flytja
bókasafnið, fyrst og fremst þar sem skólabókasafn yrði þá ófullnægjandi að
hennar mati.  Aðrir fundarmenn lýstu hug sínum til að leysa þau mál
farsællega þannig að allir gætu vel við unað, svo og önnur sem upp kynnu að koma.


Dagskrá:

1. Hugmyndir að húsakosti fyrir safnið.
Farið var yfir þær hugmyndir sem komnar eru með nýtingu húsnæðisins. Ákveðið  var að bókasafnið verði í herbergjum í báðum endum hússins. Langveggur í  miðsvæði verður fjarlægður og það svæði verði „opið rými“ sem nýtist fyrir aðra  starfsemi í húsinu, svo sem eldri borgara.

2. Umsóknir um forstöðumann bókasafns.
Þrír aðilar sóttu um starfið. Þeir eru:
Helga Kolbeinsdóttir, Inga Birna Ingólfsdóttir og Þorbjörg H. Halldórsdóttir.
Nefndin leggur til að rætt verði við alla umsækjendur. Ákveðið var að sveitarstjóri,  oddviti og formaður bókasafnsnefndar boði umsækjendur í viðtal.

3.  Útlán bóka
Nefndin leggur áherslu á að geta hafið útlán á nýjum bókum hið allra fyrsta.

 

Fundi slitið kl. 21:40

 

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar