Leikskólamál 41. fundur 30.11.2009
Fundargerð nr. 41
Skólanefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Leikskólamál
Haldinn í leikskólanum Brautarholti, 30.11.2009.
Á fundinn mætt skólanefnd, Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Hjálmarsson, Georg Kjartansson og Jónas Yngvi Ásgrímsson.
Auk þeirra: Sigríður Gylfadóttir Leikskólastjóri. Matthildur Vilhjálmsdóttir fulltrúi starfsfólks. Jóhanna Valgeirsdóttir fulltrúi foreldra og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.
Athugasemdir við fundarboð: Engar athugasemdir við fundarboð
1. Breytingar á reglum vegna undirmönnunar.
Samþykkt með áorðnum breytingum.
2. Beiðni starfsmanns um ársleyfi vegna náms.
Sigríður vék af fundi. Skólanefnd gerði enga athugasemd við umsóknina.
3. Ræsting.
Verktakasamningi var sagt upp í október. Staðan var auglýst og búið er að ráða í stöðuna.
4. Fjárhagsáætlun 2010 – tillögur – umræða.
Skólanefnd leggur til að starfsemi leikskólans verði með óbreyttu sniði og að
áfram verði hugað að aðhaldi í rekstri. Lagt var til að dagvistargjöld verði hækkuð um 12%.
5. Önnur mál.
Fundi slitið: 21:35




