486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
20.11.2009

Grunnskólamál 40. fundur 19.11.2009

Fundargerð nr. 40
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Grunnskólamál


 
Haldinn í Þjórsárskóla, Árnesi, 19.11. 2009 kl. 20:30
Á fundinn mætt skólanefnd, Jón Vilmundarson, Halla Sigríður Bjarnadóttir, Ingvar Hjálmarsson, Jóhannes Sigurðsson og Jónas Yngvi Ásgrímsson. Auk þeirra: Bente Hansen fulltrúi kennara. Helga Kolbeinsdóttir fulltrúi foreldra.  Ingibjörg María Guðmundsdóttir skólastjóri og Gunnar Örn Marteinsson oddviti.

Athugasemdir við fundarboð.  Engar athugasemdir.

 

1. Almenni hluti skólanámskrár – staðfesting – ekki áherslubreytingar en orðalagi breytt á einstaka stað
Samþykkt samhljóða.

 

2. Málþing barna – kynning. Málþingið kynnt fyrir viðstöddum.

 

3. Skólamálaráðstefna – kynning.
Ráðstefna á vegum Sambands sveitafélaga um skóla á tímamótum, hvernig gerum við enn betur. Umfjöllun um hvort sveitarfélög og skólar geti aukið gæði og þjónustu í núverandi árferði og hvernig kennara og kennaramenntun þarf.  Skólastjóri Þjórsárskóla mætti á ráðstefnuna og kynnti fyrir viðstöddum. 

 

4. Fjárhagsáætlun 2010 – tillögur – umræða. 
Jónas Yngvi lýsir yfir ánægju sinni vegna góðrar meðferðar fjár í Þjórsárskóla.    

                            
                                                                            
5. Önnur mál.
Lagt fram til kynningar bréf  frá Menntamálaráðuneytinu þar sem efni bréfsins er um að allur almennur notendahugbúnaður í íslensku skólakerfi, frá leikskólum til háskóla, verði á íslensku innan þriggja ára.

 

Lögð fram fundargerð skólaráðs.
Tillaga um breytingu á skóladagatali 2009 -2010.  Vegna mistaka var skóladagatal 2009 -2010 samþykkt með bolludag, sprengidag og öskudag viku seinna en rétt er.  Og  eftir samþykkt skólanefndar kom í ljós að skólinn fékk skólabúðir að Reykjum viku fyrr en áætlað var en farið verður með 6. – 7. Bekk 10.-14. maí í staðinn fyrir 17. – 21. maí.
Breytingar samþykktar samhljóða.


Fundi slitið: 21:45

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar