Umhverfisnefnd 09. fundur 04.05.2008
Umhverfisnefndarfundur í Árnesi, 4. maí 2008
Fundur settur kl. 20:30
Fundinn sátu:
Úlfhéðinn Sigurmundsson,
Vilborg M. Ástráðsdóttir,
Sigurður Jónsson sveitarstjóri og
Gunnar Ö. Marteinsson oddviti.
Harpa Dís Harðardóttir og Helga Guðlaugsdóttir boðuðu forföll.
Fundargerð nr. 09 rituð á tölvutæku formi.
Dagskrá
1. Sorphirðumál í sveitarfélaginu
Efni til kynningar frá Sorpstöð Suðurlands og Íslenska Gámafélaginu vegna sorphirðu. Fyrirliggur að urðunarstaður Suðurlands, Kirkjuferjuhjáleiga, loki síðasta lagið desember 2009.
Því verða sveitarfélög að huga að sínum sorpmálum og hvernig skuli haga þeim til framtíðar. Íslenska Gámafélagið hefur lagt fram ítarlegri upplýsingar um framkvæmd og að vissu leyti leggur fremur áherslu á að leita lausna innan sveitarfélaga eða í nágreni.
Íslenska Gámafélagið byggir á reynslu frá Stykkilshólmi þar sem samskonar fyrirkomulag var sett á laggirnar, eftirtektarverð var eftirfylgnin sem fyrirtækið bauð íbúum uppá á meðan verið var verið að koma þessu á laggirnar. Formaður umhverfisnefndar ætlar að ræða við kollega sinn í Stykkilshólmi um hver reynsla þeirra er nú orðin.
Umhverfisnefnd leggur til að Sveitarstjórn óski eftir formlegu tilboði frá Íslenska Gámafélaginu varðandi sorphirðu samanbr. fund frá 25. febrúar s.l. og kynningarefni frá þeim.
2. Önnur mál
Finna þarf lausn varðandi förgun á sláturúrgangi og hræjum en sú lausn er ekki í sjónmáli.
Rætt var um framkvæmd og kostnað við gerð gámasvæðisins hér í sveitarfélgainu.
Fundi slitið kl. 21. 45
Úlfhéðinn Sigurmundsson,
Vilborg M. Ástráðsdóttir,
Sigurður Jónsson sveitarstjóri og
Gunnar Ö. Marteinsson oddviti.




