486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 08. fundur 25.02.2008

Umhverfisnefndarfundur í Árnesi 25. febrúar  2008


Fundinn sátu:
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Finnbogi Jóhannsson
Vilborg M. Ástráðsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir og Harpa Dís Harðardóttir boðuðu forföll.

Gunnar Örn Marteinsson oddviti
Sigurður Jónsson sveitarstjóri og 
Birgir  Kristjánsson frá Íslenska gámafélaginu 
Guðjón Egilsson frá Íslenska gámafélaginu

Fyrir fund var athöfn í Skaftholti þar sem Varaformaður umhverfisnefndar, oddviti og sveitarstjóri afhentu Sjálfseignarstofnuninni Skaftholti umhverfisverðlaun fyrir árið 2007.

 

Fundargerð nr. 08 rituð á tölvutæku formi.

Þeir   Birgir  og Guðjón frá Íslenska gámafélaginu kynntu fyrir fundarmönnum sorphirðuáætlun og flokkun á sorpi.
Kynntu þeir m.a. samkomulag sem þeir gerðu við Stykkilshólmsbæ um flokkun og moltugerð.

Áherslupunktar:

• akstur
- miðað er við að sorp sé sótt til heimilis 1 x í mánuði
- akstur minnkar m.t.t. þess að jarðgerðarvél yrði í sveitarfélaginu
- hugsanlega betri nýting og röðun í tunnurnar

• flokkun
- 3 tunnur við hvert heimili
- grá fyrir almennt sorp
- græn fyrir lífrænan úrgang
- brún fyrir flokkað sorp

• jarðgerðarvél
- stofnkostnaður tiltölulega lítill
- ef moltugerðin yrði í sveitarfélaginu skapast atvinnutækifæri
- jarðgerðarvél getur annað tonni á dag en til eru margar stærðir af jarðgerðarvélum
- hægt væri að nýta jarðgerðarvél með öðrum sveitarfélögum
- áætlað er að 30 – 50 % af heimilissorpi sé lífrænt ( 213 heimili í sveitarf. )
- möguleiki að jarðgera hræ en athuga þyrfti með leyfi fyrir slíkri vinnslu auk þess sem búnaðurinn yrði dýrari

 

Ef af þessu samstarfsverkefni yrði þá getur Íslenska gámafélagið ýtt því úr vör með fræðslu til íbúa og þ.m.t. heimsókn á hvert heimili þar sem flokkunin yrði útskýrð.

 

Í lok fundarins var ákveðið að óska eftir verðhugmyndum frá fyrirtækinu bæði hvað varðar þetta flokkunar/söfnunar verkefni og eins með uppbyggingu nýs gámasvæðis

 

Vilborg M. Ástráðsdóttir ritaði fundargerð.
 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar