486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 07. fundur 18.02.2008

Umhverfisnefndarfundur í Árnesi 18. febrúar 2008
Fundur settur kl. 20:30

Fundinn sátu:
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Helga Guðlaugsdóttir
Vilborg Ástráðsdóttir
Finnbogi Jóhannsson
Harpa Dís Harðardóttir boðaði forföll

Fundargerð nr. 07 rituð á tölvutæku formi.

 

1. Staðardagskrá 21
Hugsanleg viðfangsefni Staðardagskrár 21 rædd.  Fyrsta skrefið er að skipa vinnuhóp og samkvæmt upplýsingum frá fundi 20. febrúar 2007, þá er mikilvægt að vinnuhópurinn endurspegli ákveðið þversnið af íbúum sveitarinnar.  Í vinnuhópnum sitji  fulltrúar frá bændum, ferðaþjónustu, verktökum og fyrirtækjum, skólum svo dæmi sé tekið.

Umhverfisnefnd óskar eftir fundi með hreppsnefnd og Ragnhildi H. Jónsdóttur frá Landsskrifst. Staðardagskrár 21,  sem fyrst svo hægt sé að hefja vekefnið.  Einnig svo hægt sé að setja kostnaðarliði undir fjárhagsáætlun komandi tímabils. 

Umhverfisnefnd leggur til nokkrar hugmyndir varðandi viðfangsefni sem fella megi undir hatt Staðardagskrár 21. :

• Flokkun og förgun sorps,
- íbúar fái hagnýtar upplýsingar í þeim tilgangi að þeim sé gert auðveldara með að tileinka sér flokkun sorps.

• Langtímamarkmiðssetning í umhverfismálum
- stefnumörkun sem nýtist einnig komandi hreppsnefndum.

• Grænfánaverkefni skólanna
- Styða við bakið á því verkefni

• Menningarmál eldri borgara

 

2. Önnur mál

a. Söfnun rúlluplasts

Umhverfisnefnd harmar misbrest á söfnun rúlluplasts í febrúar.  Mjög mikilvægt er að upplýsingaflæði sé gott til þeirra aðila sem eru að safna plasti, svo þeir geti gert ráðstafanir.
Hugsanlega mætti söfnunaraðili koma upplýsingum til hreppsskrifstofu sem þá gæti komið þeim á framfæri til þeirra sem óska eftir.

Umhverfisnefnd skorar á hreppsnefnd að sjá til þess að mánaðarleg hreinsun á rúlluplasti verði hér eftir sem hingað til.

 

b. Skipulag og framkvæmd á nýjum gámasvæðum sveitarfélagsins

Umhverfisnefnd skorar enn og aftur á sveitarstjórn að koma gámasvæðunum í varanlegt horf og að aukafjárveiting verði lögð í þetta verkefni svo að framkvæmdir geti hafist með vorinu.  Mjög brýnt er að hefjast handa sem fyrst þar sem í nánustu framtíð kemur sorphirðukostnaður til með að stóraukast. Því er enn frekari flokkun á sorpi mjög nauðsynleg fyrir sveitarfélagið.

 

c. Umhverfisverðlaun 2007
Á næstu dögum verður Sjálfseignarstofnun Skaftholts veitt umhverfisverðlaun ársins 2007.
 


Fundi slitið 22:00


Úlfhéðinn Sigurmundsson
Helga Guðlaugsdóttir
Vilborg Ástráðsdóttir
Finnbogi Jóhannsson

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar