486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 06. fundur 14.01.2008

Umhverfisnefndarfundur í Árnesi,  14. Janúar 2008.


Fundur settur kl. 20:30

Fundinn sátu: Vilborg Ástráðsdóttir, Helga Guðlaugsdóttir, Harpa Dís Harðardóttir, Úlfhéðinn Sigurmundsson og Finnbogi Jóhannsson.
Fundargerð nr. 06
Sveitarstjóri, Sigurður Jónsson, setur fundinn og beinir því til nefndarinnar að kjósa formann.


1. Kosning formanns
Harpa Dís Harðardóttir kjörinn formaður
Úlfhéðinn Sigurmundsson kjörinn varaformaður
Vilborg M. Ástráðsdóttir áfram ritari

Sveitarstjóri yfirgefur fundinn.

 

2. Verkefni nefndarinnar
2.a. Umhverfisverðlaun umhverfisnefndar
Rætt um hina ýmsu staði, samanbr. Fundargerð nr. 4 frá 24. Janúar 2007.
Umhverfisnefnd ákveður að veita Skaftholti umhverfisverðlaun fyir árið 2007. Skaftholt er vel að verðlaununum komin þar sem snyrtimennska er í hvívetna, ásýnd og aðkoma til fyrirmyndar ásamt umhverfisvænum rekstri.
Úlfhéðinn tekur að sér að ganga frá umhverfisverðlaunum í samráði við sveitarstjóra.

 

2.b.  Verkefni
Umræður um hin ýmsu verkefni nefndarinnar

2.c. Fyrirspurnir til hreppsnefnar
- Umhverfisnefnd sendir hreppsnefnd fyrirspurn um það hvort áætlað sé fjármagn í uppbyggingu gámasvæðana á þessu ári.
- Umhverfisnefnd sendir hreppsnefnd fyrirspurn um það hver staðan sé í fráveitumálum í sveitarfélaginu, samanbr. Skýrslu frá heilbr.eftirliti 25. 09 2003.
Hver er eftirlitsaðilinn í þessu úrbótaverkefni og hvort ekki sé nauðsyn að gera nýja úttekt á fráveitumálum.
-Umhverfisnefnd kallar eftir stefnu hreppsnefndar og vísar í 8. gr. erindisbréfs umhverfisnefndar ,,Nefndin skal vinna á grundvelli þeirrar almennu markmiða sem hreppsnefnd setur hverju sinni.“  Því er verksvið nefndarinnar mjög víðfemt og algjör óþarfi að eyða orku og tíma í verkefni sem ekki er samstæða um milli umhverfisnefndar og hreppsnefnar. Lykilatriði að vera í sama liði.

 

3. Önnur mál
3.a. Ráðstefna um Staðardagskrá 21.
Úlfhéðinn Sigurmundsson fer á þá ráðstefnu.

Fundur áætlaður 18. Febrúar 2008
Viðfangsefni er staðan í fráveitumálum.

Fundi slitið kl. 22:00

Harpa Dís Harðardóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Helga Guðlaugsdóttir
Finnbogi Jóhannsson
Vilborg Ástráðsdóttir

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar