486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 05. fundur 30.05.2007

Umhverfisnefndarfundur í Brautarholti  30. maí 2007

Fundur settur kl 20:00

 

Fundinn sátu: Páll Árnason,  Helga Guðlaugsdóttir,  Vilborg Ástráðsdóttir, Úlfhéðinn Sigurmundsson og Finnbogi Jóhannsson.

 

Fundargerð nr. 05.

 

1. Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar lesin upp og rædd.

 

2. Endurskoðun á erindisbréfi

Rætt um tillögu hreppsnefndar um að fella út 5 gr. í erindisbréfi umhverfisnefndar.  Umhverfisnefnd leggst alfarið gegn þeirri tillögu að fella 5 gr. út enda engin rök því til stuðnings.

Umhverfisnefnd samþykkir tillögur um að breytingu í 8. gr. og í 10 gr. í erindisbréfi.

 

3. Umhverfisverðlaun 2007

Rætt um hverjir/ hvaða staðir komi til greina.  Ákveðið að Úlfhéðinn sendi hvatningarbréf í fréttabréf sveitarinnar.

 

4. Önnur mál

4. a. Páll kynnti efni er varðar Staðardagskrá 21.  Mikilvægt er að setja sér ákveðinn ramma varðandi þau verkefni sem tekin yrðu fyrir.  Umhverfisnefnd leggur til að skipaður yrði vinnuhópur er hefur það að markmiði að koma vinnunni af stað. Fjölmörg viðfangsefni/ verkefni eru nú þegar í gangi í sveitarfélaginu og athugandi væri að koma einhverjum af þeim undir ,,hatt" Staðardagskrár 21.

 

4.b. Ef hreppsnefnd stefnir að því að taka þátt í að Staðardagskrá 21 þá sé eitt af grundvallaratriðum að koma gámasvæðunum í viðunandi horf.  Gámasvæðið í Árnesi er ENNÞÁ í algjörlega óviðunandi ástandi og ítrekar umhverfisnefnd mikilvægi þess að koma því í lag svo amk sé fært fólksbílum inn á gámasvæðið.

 

4.c. Umhverfisnefnd hvetur hreppsnefnd til að standa fyrir því malarvegir í gegnum íbúa- og sumarhúsabyggð verði rykbundnir því rykmengun er oft á tíðum óviðunandi.

 

4.d. Umhverfsnefnd telur mikilvægt að merkja göngu- og reiðleiðir í sveitarfélaginu og skorar á Hreppsnefnd að gera átak í að merkja leiðirnar markvisst - t.d. göngu- og reiðleiðina meðfram Þjórsá. 

 

4. e. Umhverfisnefnd óskar eftir því að fundargerðir umhverfisnefndar verði settar á heimasíðu sveitarfélagsins.

 

Fundi slitið kl.  21:45

Páll Árnason, Úlfhéðinn Sigurmundsson, Vilborg Ástráðsdóttir, Helga Guðlaugsdóttir og Finnbogi Jóhannsson.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar