Umhverfisnefnd 04. fundur 24.01.2007
Umhverfisnefndarfundur í Brautarholti 24. janúar 2007
Fundur settur kl 20:00
Fundinn sátu: Páll Árnason, Helga Guðlaugsdóttir, Vilborg Ástráðsdóttir og Úlfhéðinn Sigurmundsson.
Fundargerð nr. 04.
1. fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar lesin upp og rædd.
2. Þema umhverfisverðlauna
Við veitingu umhverfisverðlauna verður stuðst við heildarásýnd viðkomandi staðar. Horft verður til lögbýla, íbúðarhúsnæðis, sumarbústaða, iðnaðasvæða ofl. þ.h.. Stefnt er að því að umhverfisverðlaunin verði veitt í ágúst á komandi sumri.
3. Gerð heimasíðu
Rætt var um efnisleit, heimildir, skipulagningu og uppsetningu. Áframhaldandi vinna.
4. Önnur mál
4.a.Sorprit frá Íslenska gámafélaginu og upplýsingabæklingur um jarðgerðarvélar kynnt.
Umhverfisnefnd veltur því upp hvort að sveitarstjórn sé tilbúin til viðræðna um kaup á jarðgerðarvél, ein sér eða í samvinnu við aðra.
4.b. Varðandi erindi frá Bergi Þ. Björnssyni um meðferð skotvopna í friðlandi, ef það verði stækkað, þá er því til að svara að hópur sá er fjallar um stækkunina er en að störfum og því ekki hægt að svara spurningum um málið.
4.c. Sökum þess að talsvert hefur orðið vart við ref á undanförnum misserum vill
umhverfisnefnd vill spyrja sveitarstjórn um úrbætur í þessari meindýraeyðingu ( ref og mink).
Fundi slitið 21:30
Páll Árnason
Helga Guðlaugsdóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Vilborg Ástráðsdóttir




