486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 03. fundur 30.11.2006

Umhverfisnefndarfundur í Brautarholti      30. nóvember  2006
Fundur settur kl 20:00

Fundinn sátu: Páll Árnason,  Helga Guðlaugsdóttir,  Vilborg Ástráðsdóttir og Stefanía Sigurðardóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson boðaði forföll.

Fundargerð nr. 03.


1. Fundargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar lesin upp og rædd.

2. Bréf frá sveitarstjórn v. fundargerðar síðasta fundar ( liður 2 – 4a – 4d).
Varðandi ósk um skýringar á lið 2 í síðustu fundargerð vísum við í fundargerð umhverfisnefndar frá 20. september síðastliðnum þar sem við tilgreinum skipulagningu vetrarstarfsins:
,, Upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins. Nauðsynlegt er fyrir íbúa sveitarfélagsins að geta leitað að upplýsingum hvað varðar umhverfismálefni. “

Teljum við nauðsynlegt að koma hinum ýmsu upplýsingum á heimasíðu sveitarfélagsins með þeim hætti að það sé krækja inn á umhverfisnefnd og þá opnist heimasíða umhverfisnefndar þar sem ýmsar gagnlegar upplýsingar fyrir íbúa sveitarfélagsins koma fram. Í framhaldi af þessu vísum við í síðustu fundargerð nefndarinnar:

 ,,Skipulag heimasíðu umhverfisnefndar rætt. Mikilvægt er að skipa verkum á milli nefndarmanna  þ.e.a.s. að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar kunna að vera á  heimasíðunni.   Koma þarf upplýsingum á framfæri til íbúa því það er margt sem kemur inn á borð umhverfisnefndar og óþarfi að luma á því. “

Í talsvert langan tíma hefur það verið í umræðu umhverfisnefndar að koma upp heimasíðu og ef sveitarstjórn hefur ekkert við það að athuga þá stefnum við að því að koma henni upp á þessum vetri.  Sjá einnig í 7 gr. erindisbréfs umhverfisnefndar.

3. Ferð formanns austur á Reyðarfjörð ( moltugerðarvél ).
Formaður sagði frá ferð til Reyðarfjarðar til að skoða moltugerðarvél.  Formaður telur að sveitarfélög hafi hag af því að fara út í slíkar framkvæmdir þar sem úrgangur minnki gríðarlega, sparnaður í fluttningskostnaði, sorphaugar dugi lengur og þar af leiðandi fjárhagslegur sparnaður.  Með þessu er verið að skila til náttúrunnar aftur því sem frá henni var tekið.
Umhverfisnefnd skorar á sveitarstjórn að kynna sér þetta vel og skoða hvort ekki sé ástæða til að stefna að þessu og þá hugsanlega í samvinnu við fleiri sveitarfélög.

 

4. Staða heimasíðu
Nefndarmenn eru að vinna í því að safna efni og setja saman.

5. Önnur mál

5.a.  Viðurkenning
Umhverfisnefnd vill veita Vörðuvinafélaginu viðurkenningu vegna þess óeigingjarna og ötula starfs sem það hefur unnið í að endurhlaða og varðveita vörður á Sprengisandsleið.

5.b. Sorphreinsun meðfram vegum
Rætt um að halda áfram að stefna að ákveðnum hreinsunardegi. Mikilvægt sé að íbúar sveitarfélagsins taki þátt.

5.c.

Bókun:
Umhverfisnefnd harmar mjög úrsögn Jóhannesar Eggertssonar úr umhverfisnefnd og skorum við á Jóhannes að endurskoða ákvörðun sína þar sem við teljum að aðdragandi úrsagnarinnar sé byggður á upplýsingarskorti að hálfu hreppsnefndar.

Vilborg M. Ástráðsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Stefanía Sigurðardóttir
Páll Árnason


Áætlað er að halda næsta fund í janúar 2007.

 

Fundi slitið 22:30

Páll Árnason
Stefanía Sigurðardóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Vilborg Ástráðsdóttir

 

 

 

 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar