Umhverfisnefnd 02. fundur 25.10.2006
Umhverfisnefndarfundur í Brautarholti 25. október 2006
Fundur settur kl 20:00
Fundinn sátu: Páll Árnason, Jóhannes Eggertsson, Helga Guðlaugsdóttir, Vilborg Ástráðsdóttir og Úlfhéðinn Sigurmundsson.
Fundargerð nr. 02.
1. Funargerð síðasta fundar
Fundargerð síðasta fundar lesin upp og rædd.
2. Heimasíða umhverfisnefndar
Skipulag heimasíðu umhverfisnefndar rætt. Mikilvægt er að skipa verkum á milli nefndarmanna þ.e.a.s. að afla þeirra upplýsinga sem nauðsynlegar kunna að vera á heimasíðunni. Koma þarf upplýsingum á framfæri til íbúa því það er margt sem kemur inn á borð umhverfisnefndar og óþarfi að luma á því.
Málaflokkar sem yrðu krækjur:
• Erindisbréf umhverfisnefndar
• Nefndarmenn
• Almenn flokkun sorps - Helga
• Moltugerð - Helga
• Frárennslismál - Jóhannes
• Fegrun umhverfisins, almenn umgengni - Vilborg
• Staðardagskrá 21 – Úlfhéðinn
• Náttuminjar - Páll
Umhverfisnefnd hafi netfang svo almennir íbúar geti komið með fyrirspurnir varðandi málefni umhverfisnefndar.
3. Umhverfisverðlaun
Umhverfisnefnd fjallaði um umhverfisverðlaun nefndarinnar. Hver er tilgangurinn og hvað liggur til grundvallar ?
Umhverfisnefnd ákveður að veita umhverfisverðlaun annað hvert ár og gefa út um áramót hvað liggi til grundvallar veitingu á verðlaunum það árið.
4. Önnur mál
4. a. Fundur formanna nefnda
Páll sagði frá fundi þar sem formenn nefnda sátu með sveitarstjórn 9. október síðastliðin.
Páll tilgreindi þar umbeðið þær skyldur sem umhverfisnefnd hefur og lagði áherslu á að vera í takt við þær almennu breytingar sem væru í vændum í samfélaginu.
Ef umhverfisnefnd verður skikkuð til að fækka fundum má segja að það sé ákveðin vanþekking á starfsemi umhverfisnefndar og furða nefndarmenn sig á því. Með því verður óneitanlega skerðing á vinnu og undirbúningi á þeim mikilvægu málefnum sem þarf að fjalla um og ýta úr vör í ljósi breytinga og aukinna krafna. Það er í hlutverkahring umhverfisnefndar að vera umsagnaraðili sveitarstjórnar og í því felst að kynna sér vel málefni, afla upplýsinga og taka ákveðna stefnu á hinum ýmsu málefnum.. Umhverfisnefnd sannar tilverurétt sinn með umfjöllun um margvísleg málefni og með markvissum fundargerðum
4. b. Náttúruminjar
Nefndarmanni barst óformleg fyrirspurn varðandi gamlar leiðir í hreppnum, hvort þær væru ? mikilvægt er að tryggja að þær verði skráðar og merktar áður en sú vitneskja hverfur.
- Formaður sagði að hluti af þeim væru geymdar á þjóðskjalasafni, ákveðið fyrirtæki hefði einnig undir höndum ýmsar upplýsingar um gamlar þjóðleiðir.
- Vörðuvinafélagið hefði t.d. endurhlaðið allar vörður sem væru á Sprengisandsleið.
Nefndarmanni barst einnig óformleg fyrirspurn hvort brunnur sem er staðsettur við bæjarstæðið á gamla bænum á Skriðufelli væri á náttúruminjaskrá og hvort ástæða sé til að skrá hann og varðveita. Einnig er annar brunnur neðar í túninu, orðin hulinn.
- rætt um hvert eigi að leita til að fá þessar upplýsingar
- rætt um skildur jarðareigenda til að vita hvort væru minjar væru á landareignum.
4.c. Boðun á ársfund Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda.
Rætt um þau mikilvægu málefni sem verður fjallað um á fundinum sem verður 10. nóvember 2006.
Umhverfisnefnd óskar eftir því að sveitarstjórn taki afstöðu til þess hvort aðili frá umhverfisnefnd skuli sækja þennan fund.
4. d. Bréf Jóhannesar til sveitarstjórnar varðandi nefndarmál.
Jóhannes sagði frá bréfi sem hann sendi til sveitarstjórnar varðandi hlutfallslega mismunun á hækkun á milli nefnda og í framhaldi óskaði hann eftir lausn frá störfum í umhverfisnefnd.
Bókun:
Hörmum við þessa ákvörðun Jóhannesar og hefðum við viljað sjá sveitarstjórn gæta jafnréttis á milli nefnda hvað prósentuhækkun varðar. Reynsla af samstarfi innan nefnarinnar er mjög góð og er þar hver maður mikilvægur. Þætti okkur miður ef sú staða sem nú er uppi gengi alla leið.
Með mismunun á hækkun þóknunar til hinna ýmsu nefnda hefur sveitarstjórn sent umhverfisnefnd óbein skilaboð um að störf hennar séu ekki metin til jafns á við “æðri” nefndir.
Sameinaðir stöndum vér, sundraðir föllum vér.
Páll Árnason
Vilborg M. Ástráðsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson
4.e. Ferð til Reyðarfjarðar
Ákveðið hefur verið að senda formann umhverfisnefndar á Reyðarfjörð ásamt fleirum til að skoða moltugerðarvél. Umhverfisnefndarmenn fagna þessu.
Fundi slitið 22:30
Páll Árnason
Jóhannes Eggertsson
Helga Guðlaugsdóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson
Vilborg Ástráðsdóttir




