486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
10.11.2009

Umhverfisnefnd 01. fundur 20.09.2006

Umhverfisnefndarfundur í Brautarholti     20. september  2006
Fundur settur kl 20:00

Fundinn sátu: Páll Árnason, Jóhannes Eggertsson, Helga Guðlaugsdóttir,  Vilborg Ástráðsdóttir og Úlfhéðinn Sigurmundsson.

Fundargerð nr. 01.


Formaður býður gamla og góða nefndarmenn aftur velkomna til starfa.

1.  Skipting verka.
Samstaða innan nefndarinnar að halda óbreyttri skipan í stöður:
Páll Árnason formaður
Jóhannes Eggertsson varaformaður
Vilborg M. Ástráðsdóttir ritari

 

2.  Veturinn framundan og helstu baráttumál.
Rætt um það starf sem framundan er og skipuleggja fundi.  Í ljósi umfangsstarfs umhverfisnefndar er nauðsynlegt að funda amk. 8 sinnum á ári.

Mikilvæg málefni sem þarf að huga að sem fyrst:
• Frárennslismálum þarf að ganga frá í viðunandi hátt innan sveitarinnar, sjá úttekt Heilbrigðiseftirlits 2003.
• Gámavelli þarf að laga, ástand þeirra er stórkostlega ábótavant. Hrunamenn eru á þessum tíma að fara í endurskipulagningu og hönnun síns gámasvæðis. Tilvalið væri að vera í samfloti með þeim.
• Umsagnir umhverfisnefndar um aðal-, svæðis- og deiliskipulag sveitarfélagsins. Vísað í 3., 4. og 5. gr. erindisbréfs umhverfisnefndar.
• Upplýsingar á heimasíðu sveitarfélagsins. Nauðsynlegt er fyrir íbúa sveitarfélagsins að geta leitað að upplýsingum hvað varða umhverfismálefni.
• Staðardagskrá 21. Rætt um hvernig megi standa að henni. Mikilvægt að kynna sér áætlanir og annað slíkt.
• Stuðla að fegrun sveitarfélagsins.  Umhverfisverðlaun 2006. Almenn hvatning til íbúa til að fegra lögbýli sín samanber fegrunarátakið Fegurri sveitir.
• Áframhaldandi vinna að moltugerðarverkefninu.
• Mikilvægt að halda uppi áróðri gagnvart flokkun og förgun sorps.  Flokkun heimilissorps, frágangur sorpsins, umgengni á gámasvæðum ofl.þ.h..

Umhverfisnefnd telur það skipta miklu máli að Hreppsnefnd lesi erindisbréf Umhverfisnefndar til að átta sig á þeim skyldum sem lúta að þeim báðum hvað varðar verkskiptingu og tilhögun í umhverfismálum sveitarfélagsins.

 

3. Gámavellir.
Umhverfisnefnd leggur mikla áherslu á að gámavöllum sé komið í viðunandi horf og hvetur hreppsnefnd til að gera eitthvað í þessum málum sem allra fyrst. Eins og stendur eiga íbúar erfitt með að athafna sig við förgun sorpsins auk þess sem sóðaskapur er viðvarandi, einnig er slysahætta talsverð. Umhverfisnefnd ítrekar fyrri ályktanir og hvetur sérstaklega til að sveitarfélagið hefji úrbætur. 

4. Frárennslismál
Mikilvægt er að koma fráveitumálum í viðunandi horf og vísar umhverfisnefnd í úttekt Heilbrigðiseftirlits frá árinu 2003 þar sem tilgreint er hvernig ástandið er.  Umhverfisnefnd hefur margoft fjallað um þessi málefni með þeim tilgangi að eitthvað verði gert í þessum málum, en lítið hefur áunnist. Umhverfisnefnd ítrekar skyldur sveitarfélagsins til að ljúka þessu verki.


Hollt væri fyrir Hreppsnefnd að lesa fundargerðir Umhverfisnefndar síðasta kjörtímabils.

 


Fundi slitið 21:30

Páll Árnason
Jóhannes Eggertsson
Vilborg M. Ástráðsdóttir
Helga Guðlaugsdóttir
Úlfhéðinn Sigurmundsson

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar