Bókasafnsnefnd 01. fundur nóv. 2006
Fundargerð nr. 1
Bókasafnsnefnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Haldinn í Brautarholti 8.11.2006. kl.20:30
Á fundinn mættu Sigrún Arndal formaður, Jóhanna Lilja Arnardóttir, Bjarni Gunnlaugur Bjarnason og Halla Guðmundsóttir.
Fundarefni fundarins var framtíð bókasafnsins.
Málið var rætt, ýmsir möguleikar teknir fyrir. Bókasafnið á einum stað og þá svipað fyrirkomulag og verið hefur á opnun. Að einungis verði Skólabókasafn í skólanum og leikskólabókasafn í leikskólanum og svo einhverskonar samstarf við Héraðsbókasafnið á Selfossi.
Ákveðið var að fela formanni að leitast við hjá öðrum sameinuðum sveitarfélögum hvað þar hafi verið gert.
Ákveðið að senda fyrirspurn til sveitastjórnar um hvort halda ætti starfsemi í vetur eins og verið hefur eða hvort gera ætti einhverjar breytingar strax.
Fundi slitið kl. 22:00




