486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Flúðaskóli

Grunnskóli  þar sem nemendur stunda nám í 1. - 10. bekk.

Skólinn er staðsettur að Flúðum í Hrunamannahreppi. 

Nemendur úr Skeiða- og Gnúpverjahreppi  (8. - 10. bekkur) stunda nám í Flúðaskóla og er þeim ekið daglega þangað frá heimilum sínum.  Um 20 km eru á milli  Flúða og  byggðakjarnanna, Brautarholts og Árness.

 

Skólastjóri Flúðaskóla er Guðrún Pétursdóttir og aðstoðarskólastjóri er Jóhanna Lilja Arnardóttir.

 

 

Fræðslunefnd Hrunamannahrepps ber ábyrgð á stefnumótun sveitarfélagsins þar í skólamálum og fær til liðs við sig fulltrúa frá skólunum og heimilum.

 

Fræðsunefndin hefur sett fram og samþykkt skólastefnu Hrunamannahrepps

 

Vefsíða Flúðaskóla  hér

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar