486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Þjórsárskóli

Þjórsárskóli

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. 

Í Þjórsárskóla leggjum við áherslu á umhverfið og höfum það að yfirmarkmiði að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því. Þjórsárskóli er opinn skóli sem byggir á heildstæðri kennslu með útikennslu, kennslu í þjóðskóginum, nýsköpun og almennt verklegu námi.

Þannig er stefnt að því að fjölbreytileiki í kennslu verði áberandi þrátt fyrir að skólinn sé heimilislegur þar sem gleði virðing og samvinna einkenna starfið. Við leggjum áherslu á að öllum líði vel, allir öðlist sterka samkennd, siðvitund og að allir fái notið sín í námi við hæfi.

Við viljum hafa það að leiðarljósi að hver nemandi geti þroskað getu sína og hæfileika út frá sínum forsendum og stefnum að því að námið verði einstaklingsmiðaðra þannig að nemendur læri að setja sér markmið, beri ábyrgð á námi sínu og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.

 

 

Skólamötuneytisgjöld

Morgunhressing kr. 69,-

Hádegisverður kr. 255,-

Skólavistun 

Skólavistun klst. kr. 210,-

Aukavistun klst. kr. 210,-

Náðarkorter 15 mín. Kr. 500,- 

 


Skólinn er staðsettur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, Árnesi.

Skólastjóri er Bolette höeg Koch í leyfi Ingibjargar Maríu Guðmundsdóttur.

 

Skólaráð
Fulltrúar kennara: Bolette Höeg Koch og Hafdís Hafsteinsdóttir. Til vara Bente Hansen og Kjartan Ágústsson.

Fulltrúar starfsmanna: Bryndís Baldursdóttir og til vara Hrafnhildur Ágústdóttir.

 

Skólastjóri: Bolette Höeg Koch og til vara er staðgengill skólastjóra. 

Fulltrúi grenndarsamfélags: Leifur Stefánsson

Vefsíða Þjórsárskóla er hér.

 


© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar