Búsetumöguleikar
Í Skeiða- og Gnúpverjahreppi eru góðir búsetumöguleikar.
Sveitarfélagið er í um 100 km fjarlægð frá Reykjavík og 40 km frá Selfossi.
Ef þú vilt flytja í sveitarfélagið er flutningstilkynning hér
Upplýsingar um þjónustu og afþreyingu í sveitarfélaginu hér
01.01.2012 er eitt einbýlishús í eigu Íbúðalánasjóðs á Brautarholti laust til íveru en húsið er ekki fullfrágengið.
Rúmlega 3 ha leigulóð frá sveitarfélaginu með sökkli fyrir einbýishúsi og bílskúr að Hólabraut 5 er til sölu. Hólabraut er 1.5 km ofan við Árnes.
Atvinnumöguleikar eru all góðir því sveitin samanstendur af blandaðri starfsemi s.s. mennta- og uppeldisstörfum, ferðaþjónustu, verslun, iðngreinastörfum, hinum hefðbunda landbúnaði, ofl.
Búrfellsvirkjun og Sultartangavirkjun eru staðsettar í sveitinni og hafa ungmenni búsett hér í sveitarfélaginu geta leitað þangað í vinnu að sumri, hingað til.
Vinnuskóli er starfræktur á sumrin, á vegum sveitarfélagsins, fyrir yngsta fólkið.
Byggðakjarnar á Flúðum og í Laugarási eru í um 20 km fjarlægð svo hægt er að sækja atvinnu þangað.
Grunnskóli með 1. - 7. bekk og Leikskóli eru í sveitarfélaginu og þar eru núna 44 nemendur og 30 leikskólabörn. Nemendur í 8. - 10. bekk stunda nám á Flúðum, og næstu framhaldsskólar eru Fjölbrautarskóli Suðurlands á Selfossi og Menntaskólinn að Laugarvatni. Nemendum er ekið daglega á Flúðir og Selfoss en á Laugarvatni búa nemendur á heimavistum skólans.
Heilsugæsla er í Laugarási í Bláskógabyggð en sjúkrahús á Selfossi, Heilbrigðisstofnun Suðurlands hsu.is
Starfsstöð félagsþjónustu er í Laugarási
Lausar lóðir undir sumarhús eru til leigu hjá sveitarfélaginu og til kaups hjá einkaaðilum. Háhraðatenging við internetið fæst hér. Hitaveita er lögð á alla bæi og vegur 32, þjóðleið yfir Sprengisand, liggur í gegnum sveitina endilanga. Þá skilur Þjórsá sveitina og Rangárvallasýslu að, eða Rangárþing ytra, að austanverðu, Stóra- Laxá og Hvítá liggja á mörkum sveitarinnar og Hrunamannhrepps og Grímsness að vestanverðu, Flóahreppur er í suðri og Hofsjökull í norðri. Náttúrufegurð er talin mikil og veðurfar ágætt.
Verið velkomin til okkar.
Byggingarleyfisgjöld eru skv. gjaldskrá hverju sinni. Gjaldið er þannig uppbyggt að greitt er fastagjald (afgreiðslugjald) kr. 40 þús og að auki rúmmetragjald sem er breytilegt eftir því um hvernig húsnæði er að ræða. Hugsunin er að byggingarleyfisgjald fyrir „meðal“ íbúðarhús sé sambærilegt við meðal sumarhúsið.
Í dag er gjaldið fyrir:
Íbúðarhús kr. 140 pr rúmm.
Sumarhús kr. 340 pr rúmm.
Iðnaðarhús og landbúnaðarbyggingar kr. 50 pr rúmm.
Skrifstofu- og verslunarhúsn oþh kr. 110 pr rúmm.
Ef giskað er á rúmmetratölur fyrir neðangreindar stærðir má áætla að gjöldin séu þannig:
Íbúðarhús 150 ferm, gæti verið ca 550 rúmm, gjald kr. 117 þús
Sumarhús 50 ferm, gæti verið ca 200 rúmm, gjald kr. 108 þús
Iðnaðarhús 400 ferm, gæri verið ca 2000 rúmm, gjald kr. 140 þús
Heimæðagjald fyrir köldu vatni er kr 150 þúsund.
Innifalið í gjaldinu er tenging við vatnsveitu sveitarfálagsins og efniskostnaður síðustu 25 metra að húsi miðað við 25 mm þvermál rörs. Skilyrt að starfsmaður sveitarfélagsins sjái um tengingu við vatnsveitu og samþykki frágang.
Inntökugjald fyrir heitt vatn frá Hitaveitu Brautarholts
Hitaveita Brautarholts þjónar íbúum í Brautarholti og á Skeiðum.
Öll verð eru með 7% vsk
Vatn um mæli: kr. 51,- á m3 + 2% auðlindask. og 7% vsk
Mælagjöld á mánuði:
a) Fyrir mæla allt að 3/4": kr. 849,- + 2% auðlindask. og 7% vsk
b) Fyrir mæla 1" - 2" kr. 1698,- + 2% auðlindask. og 7% vsk
Heimæðargjöld miðast við heildar rúmmal húsa og er sem hér segir:
Hús allt að 400 m3 kr. 323.450,- + 7% vsk
Hús 400 m3 - 2000 m2 kr. 323.450.,- og 262,- á hvern m3 þar fram yfir + 7% vsk.
Hús stærri en 2000 m3 kr. 742.755,- fyrir 2000 m3 og 222,- á hvern m3 þar fram yfir + 7% vsk
Stofngjald fyrir hvern aðrennslismæli umfram einn á sama inntaki er kr 24.262,- + 7% vsk
Inntökugjald fyrir heitt vatn frá Hitaveitufélagi Gnúpverja er kr . 250.000,- + 2% auðlindagj. og 7 % vsk.
Notkun er seld eftir mæli kr. 53,- tonnið + 2% auðlindagj. og 7 % vsk. fyrir íbúðarhús og sumarhús
kr. 18,- fyrir atvinnuhúsnæði + 2 5 auðlindagj. og 7% vsk .
Eyðublað til vinstri á síðu Stjórnkerfið/Eyðublöð merkt Umsókn um hitaveitu.
Gjald fyrir breytingar á heimtaugum, aðrar en um getur í verðskrá, er samkvæmt skriflegu tilboði RARIK.
Verðskrá um dreifingu og flutning á raforku er hér
Sækja um inntöku rafmagns hjá RARIK hér
Inntaka rafmagns fer þannig fram að RARIK gerir skriflegt tilboð um tengigjald fyrir heimtaugar stærri en 2800 A.
RARIK vefsíða
Eyðublöð til vinstri á síðunni undir Stjórnkerfið /eyðublöð




