486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Sorphirða

Gjaldskrá 2012

fyrir sorphirðu og sorpeyðingu í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

Seyrulosunargjald
Árlegt gjald fyrir losun á seyru samkvæmt samþykkt nr. 149/2004 um hreinsun fráveituvatns og reglubundna losun, vinnslu eða förgun seyru verður 6.400.- kr. á rotþró.

Sorpgjöld
Sorpgjöld er lögð á samkvæmt samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 8. des 2005. 
Samþykktin var staðfest á 84 fundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 14. mars 2006, og staðfest af  Umhverfisráðuneyti þann 5. janúar 2007.

 

Sorpgjöld árið 2012 verða eftirfarandi:


Sorphirðugjald 240 L 11.550.- kr.

Sorphirðugjald 660 L 34.000.- kr.

Sorphirðugjald 1.100 L 56.250.- kr.

Sorpeyðingargjald íbúðarhús 11.700.- kr.

Sorpeyðingargjald sumarhús 8.750.- kr.

Sorpeyðingargjald atvinnu 32.000.- kr.

Holræsagjald
Holræsagjald á þeim stöðum þar sem sveitarfélagið er með holræsakerfi, gjaldið nemur 0.15% af fasteignamati.

 

 

Upplýsingar um sorphirðuna!

Skilgreining á úrgangsskipulagi í Skeiða- og Gnúpverjahreppi er samkv. skilgreiningu Íslanska Gámafélagsins sem sveitarfélagið hefur gert samning við og tekið hefur verið upp svokallað þriggja tunnu kerfi.

Brún tunna þar sem allur lífrænn úrgangur fer í.

 

Græn tunna þar sem endurvinnanlegur úrgangur fer í s.s. pappír, pappi, plast, fernur, málmdósir og ál.

 

Áburðarpokarnir, stóru, eiga að fara með þegar græna tunnan er losuð, þeir eru endurvinnanlegir.

 

Grá tunna þar sem hið óendurvinnanlega sorp fer í.

 

Samþykkt
um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

 

1. gr.
Markmið og gildissvið

Markmið samþykktar þessarar er að draga úr úrgangsmyndun, auka endurvinnslu og endurnýtingu.  Að minnka kostnað við sorphirðu og eyðingu og að úrgangseigandi greiði raunkostnað við meðhöndlun eigin úrgangs.  Að koma á jafnvægi milli kostnaðar og tekna sveitarfélagsins vegna sorphirðu og eyðingar.
Samþykktin gildir um meðhöndlun alls úrgangs sem fellur til í fyrirtækjum, lögbýlum, heimilum, leiguíbúðum, sumarbústöðum, og á óbyggðum jörðum þar sem úrgangur fellur til, í Skeiða og Gnúpverjahreppi.

 

2. gr.
Úrgangsskipulag í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

Þrjár tunnur verða við hvert heimili í sveitarfélaginu:
1. Tunna fyrir almennt sorp.
2. Græn tunna fyrir endurvinnanlegan úrgang.
3. Brún tunna fyrir lífrænan úrgang.
Hægt er að velja um þrjár gerðir íláta fyrir almennt sorp, 240 ltr., 660 ltr. og 1.100 ltr. og fer gjaldskrá eftir stærð íláta.

Garðaúrgang, svo sem gras, afklippur trjáa og annars gróðurs, torf og annar jarðvegur ber íbúum og rekstraraðilum ber að meðhöndla á upprunastað, jarðgera eða nýta til landgræðslu.

Íbúum og rekstraraðilum ber að koma dýraleifum, þ.e. sláturúrgangi og skrokkum af búpeningi í sérstakan gám sem staðsettur er á gámasvæðum.

Heyrúlluplasti skal safna jafnóðum og það fellur til og ganga frá því eins og söfnunaraðili gerir kröfu um. Söfnunaraðili sækir plastið heim á bæi og skulu söfnunardagar tilgreindir í sorpdagatali sem aðgengilet er á heimasíðu sveitarfélagsins.

Á gámasvæðum sveitarfélagsins eru ílát undir eftirtalda flokka úrgangs.
1. Endurvinnanlegan úrgang
2. Almennan úrgang
3. Brotajárn
4. Spilliefni
5. Timbur
6. Dýraleifar

Íbúum, rekstraaðilum og öðrum þeim er gámasvæðin nota ber að aðgreina sinn úrgang í framangreinda flokka eftir fremsta megni.

Nánari útfærslu á í hvaða flokk úrgangur á að fara er að finna á upplýsingablaði og á heimasíðu sveitarfélagsins.


Sveitarfélagið getur ákveðið um ítarlegri flokkun ef þörf krefur. Einnig getur sveitarfélagið staðið fyrir sérstöku átaki í hreinsunarmálum og skal skipulag slíks átaks ákveðið hverju sinni eftir því sem þörf er talin á.

Sorphirðudagatal er gefið út í byrjun hvers árs þar sem fram kemur hvenær almennur úrgangur lífrænn úrgangur, endurvinnanlegur úrgangur og heyrúlluplast er hirt frá heimilum og lögbýlum.
Þeir aðilar sem þurfa á meiri þjónustu að halda semja um það við þá þjónustuaðilla sem þeir kjósa að versla við og greiða sjálfir fyrir þá þjónustu beint til þjónustuaðila.

 

3. gr.
Skyldur íbúa og landeigenda

Allur úrgangur skal færður til meðhöndlunar í söfnunar- eða móttökustöð eftir því sem nánar er ákveðið á um í reglugerð eða samþykktum sveitarfélaga. Allur úrgangur skal fá viðeigandi meðferð áður en til förgunar kemur samkvæmt nánari reglum þar um.

Notendum þjónustunnar ber að flokka úrgang og meðhöndla hann eftir þeim reglum sem sveitarfélagið setur um meðhöndlun úrgangs.

Setja skal allan úrgang í viðeigandi ílát að öðrum kosti er sorphirðuverktaka heimilt að skilja hann eftir.

Flokkaður úrgangur skal þannig meðhöndlaður að hann blandist ekki öðrum úrgangsflokkum.

Flokkaðan úrgang skal geyma þannig að gæði hans við væntanlega endurnýtingu skerðist ekki, s.s vegna vatns eða vinds.

Koma skal í veg fyrir áð úrgangur fjúki.

Meðhöndlun á úrgangi má ekki valda lyktaróþægindum, draga til sín meindýr eða valda hreinlætisvandamáli.

Íbúar skulu þrífa sorpílát reglulega og halda þeim við.

 

4.gr.
Eftirlit

Meðhöndlun úrgangs fer fram undir yfirstjórn sveitarstjórnar og er háð eftirliti heilbrigðisnefndar eða Umhverfistofnunar eftir því sem við á, í samræmi við 2. mgr. 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.
Sveitarfélagið ræður sorphirðuverktaka til að annast sorphirðu og hefur hann eftirlit með verkefninu ásamt sveitarfélaginu og Heilbrigðisnefnd Suðurlands. 

 

5. gr.
Gjaldtaka vegna meðhöndlunar úrgangs

Sveitarstjórn skal innheimta gjald fyrir meðhöndlun og  förgun úrgangs í samræmi við ákvæði 11. grein laga nr. 55/2003. Gjaldið skal sett og innheimt samkvæmt gjaldskrá sem sett er samkvæmt ákvæðum 11. greinar laga nr. 55/2003 og 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og mengunarvarnir, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar.
Gjöld í hverjum flokki skulu vera sem næst meðal raun kostnaði við þá þjónustu sem veitt er, en þó aldrei hærri en sem nemur þeim kostnaði sem fellur til í sveitarfélaginu við meðhöndlun úrgangs og tengda starfsemi. Gjöld skulu lögð á hverja fasteign, lögbýli, stofnun eða fyrirtæki sem nýtur framangreindrar þjónustu. Sveitarstjórn skal láta birta gjaldskrána í
B-deild Stjórnartíðinda. Í gjaldskránni skal vísa til þessarar samþykktar.

 

6. grein
Viðurlög.

Með brot á samþykkt þessari skal farið samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998, með síðari breytingum og 33. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs.

 

7. grein
Gildistaka.

Samþykkt þessi staðfestist hér með  samkvæmt ákvæðum 3. ml. 5. mgr. 4. gr. laga nr. 55/2003 um meðhöndlun úrgangs, sbr. ákvæði 25. gr. laga um hollustuhætti og mengunarvarnir til þess að öðlast þegar gildi. Frá sama tíma fellur úr gildi samþykkt nr. 32/2007 um meðhöndlun úrgangs í Skeiða-og Gnúpverjahreppi.


Samþykkt á sveitarstjórnarfundi í 1. desember. 2009
Samþykkt af Heilbrigðiseftirliti Suðurlands 22. febrúar 2010
Samþykkt af Umhverfisstofnun 25. maí 2010

 

Ný eftirfarandi tillaga um gjaldskrá á seyrulosunargjaldi og sorphirðugjöldum var lögð fram í sveitarstjórn á 09. fundi hennar þann 07. desember 2010 og var samþykkt. Hún tekur gildi þegar Heilbrigðiseftirlit og Umhverfisstofnun hafa samþykkt hana.

Seyrulosunargjald
Árlegt gjald fyrir losun á seyru  samkvæmt samþykkt nr. 149/2004 um hreinsun fráveituvatns og reglubundna losun, vinnslu eða förgun seyru verður 5.833.- kr. á rotþró.


Sorpgjöld
Sorpgjöld er lögð á samkvæmt samþykkt um sorphirðu og meðhöndlun úrgangs í Skeiða- og Gnúpverjahreppi sem samþykkt var á fundi sveitarstjórnar 8. des 2005. Samþykktin var staðfest á 84. fundi Heilbrigðiseftirlits Suðurlands þann 14. mars 2006, og staðfest af  Umhverfisráðuneyti þann 5. janúar 2007. Sorpgjöld árið 2011 verða eftirfarandi.

 Sorphirðugjald   240 L                    11.077.- kr.
 Sorphirðugjald   660 L                    32.603.- kr.
 Sorphirðugjald  1.100 L                   53.985.- kr. 
 Sorpeyðingargjald íbúðarhús            11.218.- kr.
 Sorpeyðingargjald sumarhús            8.400.- kr.
 Sorpeyðingargjald atvinnu               30.565.- kr.

Samþykt sveitarstjórnar vegna sorphirðu er aðgengileg undir:      Stjórnkerfið/Reglugerðir og gjaldskrár


© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar