486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Bókasafn

Lestrarfélag Skeiða- og Gnúpverjahrepps

Bókahúsinu Brautarholti

801 Selfoss

Netfang: bokasafn@skeidgnup.is
Sími: 486-5505

 

Opið veturinn 2010-2011

Fimmtudaga     kl. 20 - 22

Safnið er almenningsbókasafn ásamt því að þjónusta grunn- og leikskóla sveitarfélagsins.
það er tengt hinum miðlæga gagnagrunni Gegni sem Landskerfi bókasafna rekur og markmið þess er að tryggja sem bestan aðgang, fyrir alla, að bókfræðilegum upplýsingum  til nota  í námi, leik og starfi.

Lestrardagbók
Hægt er að fá nýju útgáfuna af lestrardagbókinni hjá Lestrarfélagi Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Í bókina er skrifað niður hvað lesið er. Lestrarbókin er ætluð börnum og fullorðnum, leshringjum og sem skemmtileg tækifærisgjöf.
Með bókinni geta foreldrar fylgst með því hvað þeir eða börnin hafa lesið. Lestrarbókin getur því orðið skemmtileg heimild um góðar samverustundir með börnunum og bókum.
Í bókinni er formáli eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og teikningar eftir Björn Heimi Önundarson.
Bókin kostar kr. 300,-

 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar