486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Félagsþjónusta

Félagsþjónusta Uppsveita Árnessýslu og Flóa

Velferðarþjónusta Árnesþings

Uppsveitir Árnessýslu, Flóahreppur, Hveragerði og Ölfus hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu sem ber nafnið Velferðarþjónusta Árnesþings. Velferðarþjónustan verður með þrjár starfsstöðvar og einn sameiginlegan félagsmálastjóra og eina velferðarnefnd sem fer með málefni félagsþjónustu og barnaverndar. Félagsmálastjóri er María Kristjánsdóttir og er starfsstöð hennar í Hveragerði.  María mun vera með fasta viðveru á hverri starfsstöð og verður sá tími auglýstur síðar.

Ráðnir hafa verið félagsráðgjafar/ráðgjafar á hverja starfstöð þ.e. í Ölfus, Hveragerði og Laugarás.

Félagsráðgjafi og ráðgjafar stöðvanna eru:
Eyrún Hafþórsdóttir, ráðgjafi Ölfusi sími 480-3800
Halla Dröfn Jónsdóttir, ráðgjafi Hveragerði sími 483-4000
Nanna Mjöll Atladóttir, félagsráðgjafi Laugarási sími 480-5300 nanna@laugaras.is

Hægt er að ná í Maríu Kristjánsdóttur félagsmálastjóra í síma 483-4000 eða
maria@hveragerdi.is Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.


Í Velferðarnefnd Árnesþings sitja:

Aðalmenn:

Unnur Þormóðsdóttir, formaður
Harpa Dís Harðardóttir, varaformaður harpadis@skeidgnup.is
Jón Páll Kristófersson,
Helena Helgadóttir
Alma Anna Oddsdóttir

Varamenn:
Harpa Hilmarsdóttir
Íris Ellertsdóttir
Birkir Sveinsson
Bjarney Vignisdóttir
Hörður Óli Guðmundsson

Félagsþjónusta Uppsveita og Flóa heimasíða  hér

 

Neyðartilvik vegna barnaverndar um kvöld og helgar skal tilkynna til lögreglunnar á Selfossi en sérstakur samningur liggur fyrir um framkvæmd þess og gefur lögreglan samband við félagsmálastjóra.

Neyðarsíminn er 848-8441


  
Heimasíða svæðisskrifstofu fatlaðra á Suðurlandi http://www.smfs.is/
 
 


© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar