486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.

Grunnskólar


Þjórsárskóli

Þjórsárskóli er grunnskóli fyrir 1.-7. bekk. Í upphafi skólaársins 2008-2009 voru 54 nemendur í skólanum, sem er kennt í fjórum kennsluhópum þar sem tveir árgangar eru í hóp og 7. bekkur út af fyrir sig.
Í Þjórsárskóla leggjum við áherslu á umhverfið og höfum það að yfirmarkmiði að skila landinu til komandi kynslóða í betra ástandi en við tókum við því. Þjórsárskóli er opinn skóli sem byggir á heildstæðri kennslu með útikennslu, kennslu í þjóðskóginum, nýsköpun og almennt verklegu námi. Þannig er stefnt að því að fjölbreytileiki í kennslu verði áberandi þrátt fyrir að skólinn sé heimilislegur þar sem gleði virðing og samvinna einkenna starfið. Við leggjum áherslu á að öllum líði vel, allir öðlist sterka samkennd, siðvitund og að allir fái notið sín í námi við hæfi. Við viljum hafa það að leiðarljósti að hver nemandi geti þroskað getu sína og hæfileika út frá sínum forsendum og stefnum að því að námið verði einstaklingsmiðaðra þannig að nemendur læri að setja sér markmið beri ábyrgð á námi sínu og sýni sjálfstæði í vinnubrögðum.


Skólinn er staðsettur í Árnesi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.

Skólastjóri er Ingibjörg María Guðmundsdóttir.

 

 

Flúðaskóli

Grunnskóli þar sem kenndur er 1. 10. bekkur.
Nemendur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi  (8. - 10. bekkur) stunda nám í Flúðaskóla og er þeim ekið daglega þangað frá heimilum sínum.  Um 20 km eru á milli  Flúða og  byggðakjarnanna hér í sveitarfélaginu,  Brautarholts og Árness.

 

Skólinn er staðsettur að Flúðum, Hrunamannahreppi.

Skólastjóri er Guðrún Pétursdóttir og aðstoðarskólastjóri er Jóhanna Lilja Arnardóttir.

Fræðslunefnd Hrunamannahrepps ber ábyrgð á stefnumótun sveitarfélagsins þar í skólamálum og fær til liðs við sig fulltrúa frá skólunum og heimilum.

 

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar