Æskulýðs- og tómstundastyrkur 2012
Bókað var eftirfarandi á 24. sveitarstjórnarfundi þann 06. desember 2011.
Sveitarstjórn Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára til og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50.000.- kr. á árinu 2012 til að stunda íþrótta, æskulýðs eða menningarstarf.
Með umsókn þarf að fylgja frumrit kvittunar um greiðslu frá aðila sem uppfyllir skilyrði að um viðurkennda starfsemi sé að ræða og fagaðilar sjái um þjálfun og /eða menntun
Þessi styrkur er ætlaður ungu fólki til þess að auðvelda þeim uppbyggjandi tómstundastarf.




