486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.

Húsaleigubætur

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 

Leigjendur íbúðarhúsnæðis, með lögheimili  í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, eiga rétt á húsaleigubótum. Þó er skilyrði að húsaleigusamningur um viðkomandi húsnæði sé til sex mánaða hið minnsta og að samningi hafi verið þinglýst.

 

Fylgiskjöl sem þurfa að vera með umsókn:

 

1. Frumrit þinglýsts húsaleigusamnings á staðfestu samningseyðublaði.

 

2. Staðfest ljósrit skattframtals síðasta árs allra þeirra sem eiga lögheimili/aðsetur í íbúðinni.

 

3. Staðfesting skóla um nám barna umsækjenda 20 ára og eldri.

 

4. Launaseðlar þeirra sem búa í íbúðinni fyrir síðustu þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald vegna sjálfstæðrar starfsemi.

 

Minnum á að umsækjandi þarf sjálfur að undirrita umsóknina.

 

Sjá reiknivél húsaleigubóta  hér.

Reglur um húsaleigubætur hér.

Umsókn um húsaleigubætur, hægt að fylla út hér.

 

Réttur til húsaleigubóta er ekki fyrir hendi ef umsækjandi eða einhver sem í húsnæðinu býr er skyldmenni leigusala í beinan legg eða kjörbarn, fósturbarn, systkini, barn þeirra eða tengdaforeldri, ef umsækjandi eða einhver sem býr í húsnæðinu með honum nýtur réttar til vaxtabóta eða ef leigusamningur er til skemmri tíma en sex mánaða.

 

Félags- og tryggingamálaráðuneyti hér.

 

Ljósm.: khg. Í Reykjaréttum 2010.

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar