486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
19.11.2010

Menningarkvöldið í Brautarholti, skemmtilegt.

  • 1
  • 2
  • 3

Menningarkvöld var haldið í Bókasafni Skeiða- og Gnúpverjahrepps  í Brautarholti 18. nóv. 2010. Sigrún Guðlaugsdóttir formaður  Menningar, æskulýðs, velferðar-og jafnréttisnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá kvöldsins en nefndin stóð fyrir þessari samkomu. Fyrstur kom fram  Ari Trausti Guðmundsson, rithöfunndur og  las hann upp og  sýndi myndir úr nýrri bók sinni ...

19.11.2010

Staða flokkunarmála í Skeiða og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Íbúar í Skeiða og Gnúpverjahreppi hafa nú flokkað heimilissorp sitt í rúmt ár. Innleiðing flokkunarkerfisins gekk vel í sveitarfélaginu og voru íbúar afar jákvæðir. Miklar breytingar hafa orðið í sorpmálum sunnlendinga undanfarið og nægir þar að nefna lokun urðunarstaðarins í Kirkjuferjuhjáleigu sem varð til þess að öllu sorpi af suðurlandi ...

16.11.2010

Safnahelgi á Suðurlandi tókst vel.

  • 1
  • 2
  • 3

Aðstandendur og ekki síður gestir Safnahelgar á Suðurlandi voru ánægðir með dagskrána og aðsókn var góð að hinum ýmsu uppákomum og boðum. Nokkrir staðir í Uppsveitunum tóku þáttog hér fylgja myndir af viðburðum safnahelgar.  Fyrri tvær myndirnar eru frá Kaffi Kletti í Bláskógabyggð þar sem flutt var dagskrá í tali og tónum tileinkuð ...

14.11.2010

Fréttabréfið komið á vefinn

  • 1
  • 2
  • 3

Fréttabréfið mætt á vefinn stútfullt af alls konar fréttum. Lesa hérMynd nr. 2  er teiknuð af Heklu Salóme Magnúsdóttur 10 ára, Blesastöðum 3 og prýðir jólakort Einstakra barna nú í ár. Myndin heitir: "Sælla er að gefa en þiggja. " Kortin fást hjá Hörpu Dís Harðardóttur, Björnskoti.  

23.10.2010

Gott námskeið haldið fyrir foreldra að Hótel Heklu

  • 1
  • 2
  • 3

Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp sniðið að börnum var haldið að Hótel Heklu þann 23. okt. (fyrsta vetrardag) frá kl. 10:00 -14:30. Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og kennari sagði frá orsökum slysa á börnum  og kenndi skyndihjálp og endurlífgun. Upplýsingar um öryggi barna á www. forvarnahusid. isUpplýsingar um heita vatnið og brunasár á www. stillumhitann. isMargt ...

20.10.2010

Safnahelgi Suðurlands í Uppsveitum Árnessýslu 5. - 7. nóvember 2010

Dagskrá hér SkálholtSkálholtskirkja og safnið í kjallaranum eru opin alla daga frá kl. 9:00. Aðgangur ókeypis um safnahelgiNýja gestastofan opin alla helgina frá kl. 10:00. Aðgangur ókeypis um safnahelgi. Sunnudagur 7. nóvemberKl. 11:00 Messa í SkálholtskirkjuKl. 14:00 Söguganga á Skálholtsstað undir leiðsögn heimamannaKl. 15:00 Kaffihlaðborð í SkálholtsskólaKl. 20:00 Tónleikar í Skálholtskirkju. Skálholtskórinn undir stjórn ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar