Staða flokkunarmála í Skeiða og Gnúpverjahreppi
Íbúar í Skeiða og Gnúpverjahreppi hafa nú flokkað heimilissorp sitt í rúmt ár. Innleiðing flokkunarkerfisins gekk vel í sveitarfélaginu og voru íbúar afar jákvæðir. Miklar breytingar hafa orðið í sorpmálum sunnlendinga undanfarið og nægir þar að nefna lokun urðunarstaðarins í Kirkjuferjuhjáleigu sem varð til þess að öllu sorpi af suðurlandi ...
Safnahelgi á Suðurlandi tókst vel.
Aðstandendur og ekki síður gestir Safnahelgar á Suðurlandi voru ánægðir með dagskrána og aðsókn var góð að hinum ýmsu uppákomum og boðum. Nokkrir staðir í Uppsveitunum tóku þáttog hér fylgja myndir af viðburðum safnahelgar. Fyrri tvær myndirnar eru frá Kaffi Kletti í Bláskógabyggð þar sem flutt var dagskrá í tali og tónum tileinkuð ...
Fréttabréfið komið á vefinn
Fréttabréfið mætt á vefinn stútfullt af alls konar fréttum. Lesa hérMynd nr. 2 er teiknuð af Heklu Salóme Magnúsdóttur 10 ára, Blesastöðum 3 og prýðir jólakort Einstakra barna nú í ár. Myndin heitir: "Sælla er að gefa en þiggja. " Kortin fást hjá Hörpu Dís Harðardóttur, Björnskoti.
Gott námskeið haldið fyrir foreldra að Hótel Heklu
Námskeið um slysavarnir og skyndihjálp sniðið að börnum var haldið að Hótel Heklu þann 23. okt. (fyrsta vetrardag) frá kl. 10:00 -14:30. Herdís L. Storgaard hjúkrunarfræðingur og kennari sagði frá orsökum slysa á börnum og kenndi skyndihjálp og endurlífgun. Upplýsingar um öryggi barna á www. forvarnahusid. isUpplýsingar um heita vatnið og brunasár á www. stillumhitann. isMargt ...
Safnahelgi Suðurlands í Uppsveitum Árnessýslu 5. - 7. nóvember 2010
Dagskrá hér SkálholtSkálholtskirkja og safnið í kjallaranum eru opin alla daga frá kl. 9:00. Aðgangur ókeypis um safnahelgiNýja gestastofan opin alla helgina frá kl. 10:00. Aðgangur ókeypis um safnahelgi. Sunnudagur 7. nóvemberKl. 11:00 Messa í SkálholtskirkjuKl. 14:00 Söguganga á Skálholtsstað undir leiðsögn heimamannaKl. 15:00 Kaffihlaðborð í SkálholtsskólaKl. 20:00 Tónleikar í Skálholtskirkju. Skálholtskórinn undir stjórn ...
Gagnlegur fundur um stoðkerfi atvinnulífsins
Fundur um stoðkerfi atvinnulífs og nýsköpunar var haldinn í Árnesi þann 12. október s. l. Þar komu forsvarsmenn þeirra stofnana sem gefa sig út fyrir að aðstoða við nýsköpun og atvinnuþróun á Suðurlandi svo sem:Atvinnuþróunarfélag Suðurlands www. sudur. isVaxtarsamningur Suðurlands www. sudur. isHáskólafélag Suðurlands http://www. hfsu. is/ Matarsmidja Uppsveitanna www. matis. is Guðjón Þorkelsson Menningarráð Suðurlands www. sunnanmenning. isMarkaðsstofa Suðurlands www. markadsstofa. isFerðamálafulltrúi Uppsveitanna/klasar www. sveitir. is Fundurinn var upplýsandi og gagnlegur ...




