Desember Fréttabréfið komið á vefinn
Fréttabréfið tilbúið með ýmsum tilkynningum, jólasögu, Hrunaspjalli, Pistli frá oddvita, fundargerðum sveitarstjórnar og nýtt sorpdagatal fyrir árið 2011 verður sent með. Lesa FréttabréfÓska öllum lesendum gleðilegarar hátíðar og farsæls nýs árs með kærri þökk fyrir skemmtileg og góð samskipti á árinu. JólakveðjurKhg.
Gjaldskrá Skeiða- og Gnúpverjahrepps 2011
Tillaga að gjaldskrá Skeiða-og Gnúpverjahrepps fyrir árið 2011 var lögð fram á 09. fundi sveitarstjórnar 07. desember 2010. Sveitarstjórn samþykkti tillöguna og er hún eftirfarandi:ÚtsvarSveitarstjórn samþykkir að útsvarshlutfall árið 2011 verði óbreytt frá fyrri ákvörðun á fundi sveitarstjórnar þann 16. nóv. 2010, þ. e. 13,28%, en með fyrirvara um að lagabreytingar nái fram ...
Sveitarstjórn greiðir 50.000,- tómstundastyrk árið 2011
Sveitarstjórn samþykkti á 08. fundi sínum þann 07. desember að hækka æskulýðs- og tómstundastyrkinn 1. janúar 2011. Bókað var eftirfarandi á fundinum:Sveitarstjórn Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára til og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50. 000. - kr. á ...
Sveitarfélagið tekur þátt í kostnaði við kaup á námsmannakortum sem gilda í strætó bs.
Á 06. fundi sveitarstjórnar miðvikudaginn 6. október 2010 samþykkti sveitarstjórn reglur um þátttöku sveitarfélagsins í kostnaði námsmanna við kaup á strætókortum á höfuðborgarsvæðinu. Reglurnar eru birtar hér og umsóknareyðublað er á heimasíðunni hér til vinstri undir Stjórnkerfið/Eyðublöð. 1. gr. Námsmenn sem skráðir eru til náms í framhaldsskóla eða háskóla á höfuðborgarsvæðinu og eru með lögheimili í Skeiða-og ...
Kjörfundur vegna kosninga til stjórnlagaþings fer fram í Árnesi 27. nóvember 2010.
Kosið verður í Félagsheimilinu Árnesi og hefst kosning kl. 11:00 og lýkur kl. 20:00. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu Skeiða- og Gnúpverjahrepps á opnunartíma skrifstofunnar. Kjósendur eru vinsamlega beðnir um að hafa meðferðis persónuskilríki á kjörstað. Kjörstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps.
Menningarkvöldið í Brautarholti, skemmtilegt.
Menningarkvöld var haldið í Bókasafni Skeiða- og Gnúpverjahrepps í Brautarholti 18. nóv. 2010. Sigrún Guðlaugsdóttir formaður Menningar, æskulýðs, velferðar-og jafnréttisnefndar Skeiða- og Gnúpverjahrepps bauð gesti velkomna og kynnti dagskrá kvöldsins en nefndin stóð fyrir þessari samkomu. Fyrstur kom fram Ari Trausti Guðmundsson, rithöfunndur og las hann upp og sýndi myndir úr nýrri bók sinni ...




