486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
18.01.2011

Íþrótta- og æskulýðsstyrkur kr 50. þúsund árið 2011 fyrir 6 - 18 ára.

Hér á eftir fer bókun sveitarstjórnar á 9. fundi sínum þann 7. desember  2010. "Sveitarstjórn  Skeiða – og Gnúpverjahrepps samþykkir að allir grunnskólanemendur og framhaldsskólanemendur frá 6 ára  til  og með 18 ára geti sótt um styrk sem nemur allt að 50. 000. - kr. á  árinu 2011 til að stunda íþrótta, æskulýðs ...

14.01.2011

Malarbraut, Holtabraut og Vallarbraut skulu þær heita

Göturnar í Brautarholti  hafa nú fengið nöfn og eftirfarandi er bókun sveitarstjórnar af síðasta fundi sínum þann 11. janúar  um málið.  "Sveitarstjórn  þakkar íbúum fyrir góðar tillögur að götunöfnum í Brautaholtiog samþykkir að nöfnin  Malarbraut, Holtabraut og Vallarbraut verði notuð hér eftir.   Ágúst Guðmundsson, Brautarholti  sendi þessar tillögur til sveitarstjórnar og ...

13.01.2011

Janúar Fréttabréfið komið á vefinn

Hér er komið Þorrafréttabréfið með ýmsum upplýsingum og auglýsingum,fundargerðum hreppsnefndar, atvinnuauglýsingu ofl. Lesa hér

28.12.2010

Kveikt var í brennu á Þrettándanum 6. janúar

Kveikt var í brennu á gámasvæðinu við Árnes kl. 20:00 á þrettándanum. Íbúar komu og kvöddu jólin við brennuna og unga fólkinu fannst gaman þó kalt væri nokkuð í veðri en brennan logaði glatt.

15.12.2010

Hundafangari ráðinn í Skeiða - og Gnúpverjahreppi

Ragnar Sigurjónsson, Flóahreppi, hefur verið ráðinn hundafangari í Flóahreppi og Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Helstu verkefni hundafangara eru að svara fyrirspurnum og greiða úr málum sem upp kunna að koma vegna hundahalds í sveitarfélögunum. Einnig að annast vörslu hunda sem handsamaðir eru með vísan til samþykkta um hundahald í sveitarfélögunum. Sími hjá ...

15.12.2010

Götunöfn í Brautarholti

  • 1
  • 2

Nú hafa alls borist 15 nöfn á göturnar í Brautarholti  og eru þau meðfylgjandi. Þetta er góð þátttaka og þeim sem sendu þessi nöfn inn er hér með þakkað kærlega fyrir. Þetta eru allt ágætis nöfn og í raun og veru úr vöndu að ráða en gaman væri að þeir sem hefðu áhuga á að láta skoðun sína í ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar