Breyttur opnunartími sundlauga frá 14. mars - 10. júní 2011
Vegna hagræðingar í rekstri Skeiða- og Gnúpverjahrepps hefur verið ákveðið að draga úr opnunartíma sundlauganna þ. e. frá 1. mars til 10. júní en þá er reiknað með að sumaropnunartími lauganna verði með svipuðu sniði og verið hefur. Þá minnum við á breytta reglugerð um sundstaði sem tók gildi þann 1. janúar ...
Leikverkið GAUKSSAGA frumsýnt 26. mars í Árnesi
Það hefur lengi verið draumur heimamanna í Skeiða- og Gnúpverjahreppi að til yrði leikrit um Gauk Trandilsson á Stöng og örlagasögu hans. Vilborg Halldórsdóttir leikkona úr Reykjavík hefur samið leikverkið GAUKSSÖGU. Leikdeild Ungmennafélags Gnúpverja ásamt Ásborgu Arnþórsdóttur ferðamálafulltrúa hittust 20. janúar sl. og gerðu samning við Vilborgu um að hún ...
Matvælasmiðjan á Flúðum opnar í mars.
Síðustu mánuði hefur verið unnið að standsetningu aðstöðu og öflun og uppsetningu tækjabúnaðar í húsnæði Matarsmiðjunnar á Flúðum. Þá er verið að sækja um starfsleyfi til Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Starfsemin mun svo hefjast í mars. Hugmyndin með Matvælasmiðjunni er að aðstoða fólk með hugmyndir að matvælaframleiðslu með faglegri aðstoð og aðstöðu. ...
Ályktun félagsmálanefndar Uppsveita Árnessýslu og Flóa á fundi 02.02.2011
Félagsmálanefnd uppsveita Árnessýslu og Flóa skorar á ríkisstjórnina að tryggja fullnægjandi löggæslu í Árnessýslu. Félagsmálanefnd hefur þungar áhyggjur af niðurskurði löggæslumála í Árnessýslu þar sem það varðar öryggi barna að lögreglan getur ekki sinnt þeim aðstoðarbeiðnum sem berast, m. a. frá heimilum í vanda. Mikilvægur liður í störfum lögreglunnar eru forvarnir, s. s. ...
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í. Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að árið 2011 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla ...
Ný reglugerð um sundstaði tók gildi 1. janúar 2011
Börnum yngri en 10 ára er óheimill aðgangur að sund- og baðstöðum nema í fylgd með syndum einstaklingi 15 ára eða eldri. Ekki skal leyfa viðkomandi að hafa fleiri en tvö börn með sér, nema um sé að ræða foreldri eða forráðamann barna. Börn eru á ábyrgð foreldra og/eða forráðamanna á sundstöðum! Reglugerðin byggir ...




