Hund vantar eiganda, er hjá hundafangara!
Hjá mér er hundur sem kom til mín seint á miðvikudag þann 20. apríl hann var tekinn í Merkurhrauni, svartur og hvítur. Hann er ómerktur. Ragnar Sigurjónsson Dýraeftirlitsmaður S. 859-9559
Fréttabréf aprílmánaðar komið út.
Fréttabréfið kom út þann 14. apríl og ýmislegt þar að venju. Hægt að nálgast það hér.
Námskeið í fuglaleiðsögn á Suðurlandi
Námskeið í fuglafræði og fuglaleiðsögn fyrir leiðsögumenn, ferðaþjónustuaðila og aðra áhugasama verður haldið á Suðurlandi í vor. Dagana 15. apríl kl 14:00-19:00 og 17. apríl kl 13:00-18:00 verða fyrirlestrar og 30. apríl og 14. maí verður útikennsla. Áhersla verður á fuglaskoðun á Suðurlandi. Námskeiðið tekur alls 24 klst. Fyrirlestrar verða ...
Þjóðaratkvæðagreiðsla í Bókahúsinu, Brautarholti 9. apríl 2011
Þjóðaratkvæðagreiðsla um framtíðargildi laga nr. 13/2011fer fram 9. apríl 2011. Kosið verður í Bókasafnshúsinu í Brautarholti. Kjörfundur stendur frá kl. 11:00 - 19:00Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins á opnunartíma hennar frá 30. mars n. k. Eins og venja er getur fólk kosið utankjörstaðar hjá Sýslumanninum á Selfossi. Rétt er að hafa skilríki með sér á ...
Málþing um skólamál í Árnesi 26. mars n.k.
Skólanefnd Skeiða- og Gnúpverjahrepps stendur fyrir málþingi laugardaginn 26. mars kl. 10-14 í Félagsheimilinu Árnesi. Málþingið hefst á framsögu skólastjóra um málefni skólanna og að þeim loknum stýra fulltrúar í skólanefnd umræðuhópum. Samantekt og kynning á hópastarfi verður í lok dags. Boðið verður upp á léttan hádegisverð.
Fréttabréfið komið á vefinn
Mars fréttabréfið hefur litið dagsins ljós oghægt að nálgast það hér Ýmsar nytsamar upplýsingar og auglýsingar að venju.




