486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
06.05.2011

Skeiða- og Gnúpverjahreppur eignast sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal

Landsvirkjun og Skeiða- og Gnúpverjahreppur hafa í dag (5. maí) gert með sér samkomulag um yfirtöku Skeiða- og Gnúpverjahrepps á sundlaug Landsvirkjunar í Þjórsárdal með öllum réttindum sem henni fylgja. Sundlaugin í Þjórsárdal var upphaflega byggð skömmu fyrir 1980. Síðan þá hafa ýmis mannvirki sem tengjast rekstri sundlaugarinnar og starfsemi hennar ...

05.05.2011

Viðurkenning fyrir afbragðsstörf í þágu aldraðra veitt Dvalarheimilinu á Blesastöðum

Í 5. tbl. Dagskrárinnar þann 5. maí á bls. 11 segir frá viðurkenningu Öldrunarráðs Íslands 2010  fyrir afbrags störf í þágu aldraðra. Viðurkenninguna hlaut Dvalarheimilið á Blesastöðum á Skeiðum og veitti Hildur Hermannsdóttir forstöðukona heimilisins verðlaununum viðtöku  en þau eru verk eftir leirlistarkonuna Steinunni Marteinsdóttur. Sr. Bernharður Guðmundsson fráfarandi formaður Öldrunarráðs Íslands og Pétur Magnússon ...

04.05.2011

Góðir gestir á ferð með gjafir

Þriðjudaginn 03. 05. 2011 komu þau Áslaug Þorleifsdóttir og Benedikt G. Sigurðsson og hittu hreppsnefndina á fundi  í Árnesi en Benedikt starfaði í hreppsnefnd Gnúpverjahrepps á árunum 1982-1994 og bjuggu þau hjón við Búrfellsvirkjun frá 1969-1999. þau komu færandi hendi og afhentu sveitarstjórn tvær vatnslitamyndir, listilega, málaðar af  Sigurlín Grímsdóttur á Votumýri hér í sveit, af gamla ...

03.05.2011

Sameinast um velferðarþjónustu

 Samstarfssamningur um sameiginlega félagsþjónustu í Hveragerði, Ölfusi, Grímsnes- og Grafningshreppi, Bláskógabyggð, Hrunamannahreppi, Skeiða- og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi var undirritaður af fulltrúum sveitarfélaganna á Flúðum þann 2. maí 2011.   Við sama tilefni var undirritað erindisbréf fyrir sameiginlega velferðarnefnd þessara sveitarfélaga.   Með þessari undirritun er sameiginleg yfirstjórn velferðarmála þessara sveitarfélaga  staðreynd.   Tilgangur ...

28.04.2011

Umhverfisnefnd Þjórsárskóla fær verðlaun sem varðliðar umhverfisins.

"Varðliðum umhverfisins"  voru veitt verðlaun í Þjóðmenningarhúsinu þann  28. apríl 2011 og var það umhverfisnefnd Þjórsárskóla sem hlaut þau þetta árið. Varðliðar umhverfisins er verkefnasamkeppni umhverfisráðuneytisins, Landverndar og Náttúruskóla Reykjavíkur um umhverfismál. Verðlaunin eru fyrir bækling um flokkun sorps í sveitarfélaginu sem dreift verður á hvert heimili innan skamms.  Við óskum nemendum og ...

27.04.2011

Laus kennarastaða við Þjórsárskóla

Það er laus kennarastaða við Þjórsárskóla, Skeiða- og Gnúpverjahreppi.   Um er að ræða nýja stöðu til eins árs, sem skiptist í  80% sérkennslu og 20% verkefnastjórnun. Verkefnastjórn verður útfærð nánar af skólastjóra en aðalverkefni verða í tengslum við sérkennslu, sérþarfir nemenda og umsjón með slíku starfi innan skólans og samstarf ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar