Lóðir til leigu og sölu í Skeiða og Gnúpverjahreppi
Vegna eftirspurnar um lóðir hér í sveitarfélaginu birtum við sérstaklega þessa frétt. Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur sumarhúsalóðir til leigu sunnan vegar við Árnes sjá deiliskipulag hér. Eignarlóðir fást í landi Kílhrauns á Skeiðum skoða hér. Tvær lausar sumarhúsalóðir eru á Flötum við Árnes, lóðir nr. 8 og 22. Sjá deiliskipulag Flatir hér. Einnig eru lausar lóðir fyrir ...
Sólarlag á Jónsmessunótt
Þessi mynd var tekin þann 23. júní og sýnir sólina setjast á bak við Hamraholtið í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Hlíðarkistan sést vel til vinstri á mynd. En sólargangur er langur um þessar mundir og þaðan sem myndin er tekin, sem er litlu sunnar en Skaftholtsréttir er sólarlag um kl. 23:20 þegar sól er lengst ...
Íbúafundur í Árnesi um könnun á lagninu ljósleiðara
Sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps vinnur nú að könnun á möguleikum á að leggja ljósleiðara um allt sveitarfélagið. Áætlunin gerir ráð fyrir að ljósleiðarinn verði lagður á öll heimili í sveitarfélaginu, íbúum að kostnaðarlausu og þjónustugjöldin og sú þjónusta sem í boði verður verði sambærileg við það sem best gerist á þessu ...
Merkt gönguleið frá Stöng að Háafossi
Björgunarsveitin Sigurgeir starfar hér í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Félagar úr sveitinni hafa verið að merkja gönguleiðir inn í Þjórsárdal og síðast var það gönguleiðin frá Stöng að Háafossi sem þeir merktu. Bílfært er frá Stöng að Háafossi. Sjá gönguleið merkta á korti hér
Júní Fréttabréfið komið á vefinn
Júní Fréttabréfið er komið út og hægt er að nálgast hér Ýmislegt þar að venju s. s. auglýsing um að hátíðarhöld í tilefni af 17. júní verða í Brautarholti núna og heilmikið verður um að vera þar.
Hátíðarhöld 17. júní í Brautarholti kl. 13:00!
13:00 Leikir og sprell á íþróttavelli og í sundlaug, m. a. :Hreystikeppni, tímataka Hreppa-reipitog Stultuboðhlaup Koddaslagur í sundlaug 15:00 Hefðbundin hátíðardagskrá í salnum í Brautarholti:Hugvekja Ávarp fjallkonu Hátíðarræða Í lok dagskrár verða veitingar í boði Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Söngatriði undir kaffidrykkju. Þeir sem ætla að taka þátt í leikjum er bent á að hafa ...




