Tafir geta orðið á umferð um veg nr. 32, Þjórsárdalsveg.
Fimmtudaginn 15. sept. er fjársafn af Gnúpverjaafrétti rekið fram Skeiða– og Gnúpverjahrepp í náttstað í Fossnesi og um miðjan dag geta orðið tafir á umferð, um veg nr. 32, Þjórsárdalsveg, þar sem ekki er hægt að reka féð annars staðar. Hægt er þó að sæta lagi með að komast fram hjá frá kl. ca ...
Fréttabréf, september 2011, komið út.
Nú hefur Fréttabréfið litið dagsins ljós og er væntanlegt í póskassann í dag 14. september. Skoða hér
Kostnaður kannaður vegna lagningar ljósleiðara um sveitarfélagið.
Eins og sagt er frá í Sunnlenska fréttablaðinu 1. sept. s. l. er sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps að láta kanna kostnað við lagningu ljósleiðara á öll heimili, fyrirtæki og hugsanlega sumarhús í sveitarfélaginu. Nauðsynlegur þáttur í þeirri könnun er að finna hentugar lagnaleiðir og fá leyfi landeigenda til að leggja strenginn ...
Fréttabréfið komið út.
Fréttabréfið okkar hefur nú litið dagsins ljós þennan mánuðinn og hægt að lesa hér. Ýmislegt að venju. Þeir sem eru að leita sér að vinnu ættu að skoða það.
Auglýsing um skipulagsmál í Uppsveitum Árnessýslu og Flóahreppi
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppur, Hrunamannahreppur, Skeiða-og Gnúpverjahreppur og Flóahreppur. Samkvæmt 2. mgr. 21. gr. skipulagslaga nr. 73/1997 er auglýst niðurstaða sveitarstjórnar fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:1. Óveruleg breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012. Malarnáma í landi Miklaholts. Sveitarstjórn Bláskógabyggðar samþykkti á fundi 4. nóvember 2010 tillögu að óverulegri breytingu á aðalskipulagi sveitarfélagsins vegna námu í landi Miklaholts ...
http://www.thjorsarstofa.is
Þjórsárstofa var opnuð við hátíðlega athöfn þann 27. maí 2011. Markmið Þjórsárstofu er að miðla fróðleik og upplýsingum um landið og náttúruna, fólkið og söguna og þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu með Þjórsá sjálfa sem meginþema. Við það tækifæri var einnig tekin í notkun heimasíða þar sem hægt ...




