486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
05.10.2011

Reglur um þátttökukostnað sveitarfélagsins á kaupum námsmanna á strætókortum

Reglur um þátttökukostnað sveitarfélagsins á  kaupum námsmanna á strætókortum. 1.  gr. Námsmenn sem skráðir eru til náms í framhaldsskóla eða háskóla á höfuðborgarsvæðinu og eru með lögheimili í Skeiða-og Gnúpverjahreppi eiga þess kost að fá styrk til kaupa á námsmannakorti allt að 15. 500,- kr. sem veitir aðgang að almenningsvögnum Strætó bs. á  gjaldsvæði  ...

23.09.2011

SAFNAHELGI Á SUÐURLANDI 4. - 6. nóvember

Safnahelgin verður haldin í fjórða skipti 4. -6. nóvember.  Söfn, setur, veitingastaðir, kaffihús, listamenn, handverksfólk, sýningarsvæði og allir sem hafa áhuga geta verið með.  Skrá þarf þátttöku þar sem eftirfarandi kemur fram: Hvar viðburðurinn verður: Hvenær: Heiti: Lýsing (1-2 setningar): Tengiliður, nafn, síma, netfang og heimasiða.  Frestur til að skrá sig til þátttöku ...

21.09.2011

Heyrúlluplastið tekið 22. september

Heyrúlluplastið verður tekið  22. september og ef um mikið magn er að ræða væri það til hagræðingar ef bændur gætu aðstoðað ef á þyrfti að halda með að setja það á bíl Íslenska gámafélagsins.

17.09.2011

Velferðarþjónusta Árnesþings

Uppsveitir Árnessýslu, Flóahreppur, Hveragerði og Ölfus hafa sameinast um að reka sameiginlega félagsþjónustu sem ber nafnið Velferðarþjónusta Árnesþings. Velferðarþjónustan  verður með þrjár starfsstöðvar og einn sameiginlegan félagsmálastjóra og eina velferðarnefnd sem fer með málefni félagsþjónustu og barnaverndar. . Félagsmálastjóri er María Kristjánsdóttir og er starfsstöð hennar í Hveragerði sími 483-4000 eða maria@hveragerdi. is. ...

17.09.2011

Útleiga - Árnes - fjallaskálar

  • 1
  • 2

Útleiga á stóra sal, fundarherbergi, stólum og borðum  í Árnesi fer í gegnum skrifstofu sveitarfélagsins þar í síma 486-6014.  Líka er hægt að senda póst á kidda@skeidgnup. is Einnig er tekið við bókunum í fjallaskálana Hallarmúla, Klett, Gljúfurleit, Bjarnalækjarbotna og Tjarnarver  á skrifstofunni í Árnesi.

17.09.2011

Brautarholt - bókanir

Steinunn Á. Einarsdóttir tekur við bókunum vegna þeirrar aðstöðu sem leigð er út í leikskólanum, Brautarholti. Gsm 848-1474   Leigt er út:  salur, eldhús, gamla eldhús, borðstofa, stólar og borð.   

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar