Efni í Fréttabréfið: Skilafrestur til og með 10. nóv.
Ef þið hafið áhuga á að setja eitthvað í Fréttabréfið okkar þá væri flott að fá það ekki seinna en þann 10. nóvember. Það mun svo koma út þann 15. nóv. Framundan er góður og skemmtilegur tími. Umsjónarmaður.
Upplýsingar um öryggisfulltrúa og öryggisvörð sveitarfélagsins
Öryggisvörður sveitarfélagsins er:Kristjana Heyden Gestsdóttir, ritari/vefumsjón á skrifstofu. Þessum fulltrúa skal falið að annast öryggiseftirlit, þjálfun og fræðslu. Ennfremur skal stuðla að samstarfi hans við öryggistrúnaðarmenn, þ. e. þá sem starfsmenn kjósa til þess að sinna vinnuverndarverkefnum fyrir sína hönd. Öryggistrúnaðarmaður í Þjórsárskóla er: Lilja Loftsdóttir, stuðningsfulltrúi. Öryggistrúnaðarmaður í Leikholti, leikskólanum Brautarholti er:Sigrún H. ...
Fréttabréf október komið á vefinn
Fréttabréfið er komið út og heilmikið að lesa fyrir stóra og smáa. Hægt að nálgast hér
AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI
Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og FlóahreppiSamkvæmt 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er auglýst niðurstaða sveitarstjórnar Grímsnes- og Grafningshrepps fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingu:1. Breyting á Aðalskipulagi Grímsnes og Grafningshreppi 2008-2020 á jörðinni Suðurkot. Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti á fundi þann 5. október 2011 tillögu að breytingu á Aðalskipulagi Grímsnes- og Grafningshrepps ...
Laufblöð og plastumbúðir!
Laufblöð eru vissulega lífræn og ættu að eiga erindi í moltuna en Íslenska gámafélagið óskar eindregið eftir því að laufblöð séu ekki sett í brúnu tunnuna því þau eru garðaúrgangur og jarðgerðarvélin getur ekki torgað svo miklu af garðaúrgangi ef þau færu með. Laufblöð eru mjög fljót að brotna niður ...
Langar þig að koma og vinna með okkur ?
Leikskólinn Leikholt í Skeiða- og Gnúpverjahreppi auglýsir eftir starfsmanni á deild. Óskað er eftir jákvæðum og öflugum einstaklingi sem hefur mikinn áhuga og metnað til að starfa á leikskóla. Umsóknarfrestur er til 20. október og skal umsóknum skilað: Leikholt, Brautarholti, 801 Selfoss eða leikskoli@skeidgnup. isNánari upplýsingar veitir Vilborg M. Ástráðsdóttir leikskólastjóri, sími: 486 ...




