Tillaga að gjaldskrá fyrir kaldavatnsveitur Skeiða- og Gnúpverjahrepps
Á 55. fundi sveitarstjórnar þann 06. 10. 2009 var lögð fram tillaga um gjaldskrá fyrir kaldavatnsveitur Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Bókun sveitarstjórnar er eftirfarandi: 11. Tillaga að gjaldskrá fyrir kaldavatnsveitur Skeiða-og Gnúpverjahrepps. 1. Vatnsgjald er 0,30% af fasteignamati íbúðarhúsa og lóða, þó að hámarki 35 þúsund og að lágmarki 23 þúsund krónur. 2. Vatnsgjald atvinnuhúsnæðis skal vera 0,2% af ...
Hugsum áður en við hendum
þann 23. júní s. l. var undirritaður samningur milli Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Íslenska Gámafélagsins um flokkun sorps og moltugerð í hreppnum. Sem þátttakandi í "Staðadagskrá 21" skipar sveitarfélagið sér í hóp þeirra sveitarfélaga hér á landi sem mótað hafa sér áætlun og framtíðarsýn um sjálfbæra þróun. Það er stefna sveitarfélagsins að minnka ...
Breytingar á Sorphirðu
Þann 1. október verða miklar breytingar á formi sorphirðu í sveitarfélaginu. Breytingarnar verða á þann veg að nú þarf að flokka sorpið og ganga frá því á þann hátt að það sé sem mest nýtanlegt til endurvinnslu. Skeiða- og Gnúpverjahreppur hefur gert samkomulag við Íslenska Gámafélagið um undirbúning og aðstoð ...
Hestur í óskilum í Fjalli
Grár fullorðinn hestur í óskilum í Fjalli. Kom um mánaðarmótin júní - júlí s. l. Upplýsingar gefur Ingvar Hjálmarsson í síma 891-9597.
Fróðlegur fundur í Brautarholti
Íslenska Gámafélagið hélt kynningarfund í Brautarholti þann 23. sept. s. l. ásamt oddvitanum, Gunnari Erni, vegna þeirra breytinga sem framundan eru í sorpmálum sveitarfélagsins. Fundurinn var fróðlegur og rúmlega 40 gestir mættu en hefðu þó vel mátt vera fleiri. Samkv. upplýsingum á Flokkarinn. is er sveitarfélagið hér það sjöunda á landinu er tekur upp ...
Tækifæri til atvinnu
Hér á vefsíðunni til vinstri undir stjórnkerfið/tækifæri til atvinnusköpunar eru 4 hugmyndir sem allir þeir sem hafa áhuga á atvinnutækifærum ættu að skoða. Húsnæði þarf fyrir allar þessar hugmundir og er það til staðar hér í sveitarfélaginu fyrir hugmynd nr. 1 (bakarí) og 2 (kjötvinnsla). Hafið samband á skrifstofuna vegna ...




