486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
07.12.2011

Íbúafundur í Brautarholti 12. desember kl.20:30

Íbúafundur verður haldinn í Brautarholti,  kl. 20:30  mánudagskvöldið 12. desember  Farið verður yfir þá vinnu sem unnin hefur verið á vegum fyrirtækisins Fjarska við könnun á kostnaði vegna lagningar ljósleiðara í sveitarfélaginu. Munu þeir sem unnu úttektina mæta á fundinn og skýra niðurstöðuna. Einnig verður farið yfir önnur mál í sveitarfélaginu s. s. ...

30.11.2011

Breytingum í dælustöð Hitaveitu Brautarholts lokið!

Nú er breytingum í dælustöðinni lokið og þær heppnuðust vel. Það virðist sem góður þrýstingur sé kominn á heita vatnið. Umsjónarmaður.  

28.11.2011

Félagsheimilið í Brautarholti og leikskólinn Leikholt.

  • 1
  • 2

Félagsheimilið í Brautarholti verður alltaf að panta með góðum fyrirvara sé sótt eftir að hafa skemmtun eða samkomu af einhverju tagi í húsinu.  Öll starfsemi í húsinu, utan leikskólans,  þarf að fara í gegnum umsjónarmann sem núna er Steinunn Á. Einarsdóttir.   Leigjendur fá lykla að húsinu hjá umsjónarmanni og enginn starfsmaður ...

26.11.2011

Útsvarsprósenta og álagning fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2012

  • 1
  • 2

 Á  23. sveitarstjórnarfundi þann 15. nóvember s. l. var tillaga að útsvarsprósentu og álagningu fasteignagjalda í Skeiða- og Gnúpverjahreppi 2012 tekin fyrir og samþykkt að lækka fasteignaskattshlutfall í A flokki úr 0,60% af heildar fasteignamati í 0,50 % af heildar fasteignamati.   a.  ÚtsvarÚtsvar fyrir árið 2012 verður 14,48% b.  FasteignagjöldA- flokkur.   Fasteignaskattur íbúðarhúsnæðis eins og ...

17.11.2011

Fréttabréf Skeiða- og Gnúpverjahrepps komið á vefinn

Fréttabréfið komið á sinn stað og mikið um að vera í kringum okkur á næstunni.  Hægt að nálgast hér. Ritstjóri.

08.11.2011

Ferðaþjónusta allt árið - Málþing á Hótel Flúðum

Miðvikudaginn 16. nóvember  kl. 13:00 – 17:00 er málþing á Flúðum um ferðaþjónustu allt árið. 13:00  Setning:  Gunnar Þorgeirsson oddviti Grímsnes og Grafningshrepps„Ísland allt árið“Inga Hlín Pálsdóttir forstöðumaður  Markaðssóknar Íslandsstofu„Hugvekja um nauðsyn- og ávinning góðrar hönnunar á ferðamannastöðum“Dagný Bjarnadóttir landslagsarkitekt, formaður Hönnunarmiðstöðvar Íslands  „Um menningu í ferðaþjónustu“Lára Magnúsardóttir sagnfræðingur,forstöðumaður  Rannsóknarseturs HÍ ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar