486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 509  þann 1. maí 2012.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
02.06.2010

Landnámsdagur 5. júní. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

  • 1
  • 2

Nú er komið að því að við skemmtum okkur saman og minnumst forfeðra okkar í leik og starfi á landnámsdegi.  Dagskráin er eftirfarandi og ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  Ólafsvallakirkja kl. 10:00-12:00 Opin kirkja, sr. Axel Árnason fjallar um Olav Tvennumbrúna landnámsmann.  Húsatóftir I.   kl. 10:00-12:00 Opinn sveitabær, landnámshænur á öllum aldri, ...

01.06.2010

Síðasti fundur sveitarstjórnar 2006-2010

Síðasti fundur sveitarsjórnar sem kosin var 2006 var haldinn 01. júní 2010 og á kjörtímabilinu áttu þrír listar menn í sveitarstjórn.   • A-listi Framfarasinnar - með 2 menn kjörna • L-listi Lista um farsæla sameiningu - með 2 menn kjörna • E-listi Einingar - með 1 kjörinn mann.  Gunnar Örn Marteinsson  A-listaIngvar Hjálmarsson ...

31.05.2010

K-listi farsælla framfarasinna í meirihluta í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Niðurstöður sveitarstjórnarkosninga í sveitarfélaginu. K-listinn fékk 57,4% atkvæða og þrjá menn kjörna. N-listi Nýrra tíma nýs afls fékk 81 atkvæði og einn mann og E-listi Einingar 51 atkvæði og sömuleiðis einn mann. Á kjörskrá voru 370 og kusu 324 eða 87,57%. 295 kusu á kjörstað en 29 utan kjörfundar. Gildir seðlar voru 322 og ...

28.05.2010

Hlutastarf: Kennsla í heimilisfræði í Þjórsárskóla laus til umsóknar

Þjórsárskóla vantar kennara í nokkra tíma í heimilisfræði skólaárið 2010-2011.     Um er að ræða hlutastarf. Þjórsárskóli er grænn skóli með mikla áherslu á umhverfismennt,  náttúruna og nærsamfélagið. Leitað er eftir jákvæðum einstaklingi sem er tilbúinn að vera með í þróun og mótun nýrra kennslu- og starfshátta í skólanum sem krefst samvinnu ...

27.05.2010

Fjölmennur framboðsfundur í Árnesi

Sameiginlegur fundur framboðanna þriggja fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Skeiða- og Gnúpverjahreppi var haldinn í Félagsheimilinu Árnesi 26. maí kl. 20:30. Fjölmenni var á fundinum og voru framboðin  með framsögu um stefnumálin, þá gafst fundargestum  tækifæri á að spyrja frambjóðendur og síðan voru svo lokaorð hvers framboðs. Þetta var góður og málefnalegur fundur og markmið hjá öllum ...

18.05.2010

Framlagning kjörskrár í Skeiða- og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Kjörskrá í Skeiða- og Gnúpverjahreppi vegna sveitarstjórnarkosninga 29. maí 2010 liggur frammi á almennum opnunartíma skrifstofu sveitarfélagsins í Árnesi  kl. 09:00 – 12:00  og 13:00 – 15:00 mánudaga – fimmtudaga  frá og með 19. maí 2010.  Kosið verður í Brautarholti -  salnum. Kjörstaður opinn frá kl. 10:00  -  18:00 Kosið er utankjörstaðar hjá sýslumönnum.   Oddviti ...

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar