486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru 519  þann 1. des. 2009. Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.   Skrifstofan  í Árnesi er opin 9 -12 og        13 -15   mánudaga - fimmtudaga.
08.03.2010

Frítt í sund fyrir 18 ára og yngri íbúa í Skeiða-og Gnúpverjahreppi

  • 1
  • 2

Sveitarstjórn Skeiða-og Gnúpverjahrepps ákvað á síðasta fundi sínum að hafa frítt í sund í sundlaugum sveitarfélagsins fyrir þá íbúa sveitarfélagsins sem eru átján ára og yngri. Þetta er í samræmi við aðra stefnumótun sveitarfélagsins í þessum efnum, en sveitarfélagið veitir hverjum einstaklingi í þessum aldurshópi,  á hverju ári, tómstundastyrk að upphæð 30.000. kr. gegn framvísun reikninga frá viðurkenndum fagaðilum sem hafa umsjón með eða annast kennslu á því tómstundastarfi.

Oddviti.

 

© 2010 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar