486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
26.02.2010

Kjörfundur verður í ÁRNESI vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010

Kjörfundur verður í Árnesi samkvæmt. lögum nr. 4/2010 um gildi laga nr. 1/2010  þann 6. mars 2010  um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkisjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingasjóðs innistæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu til að standa straum af greiðslum til innistæðueigenda hjá Landsbanka Íslands.

Kjósendur eru góðfúslega beðnir um að hafa persónuskilríki meðferðis og framvísa þeim ef óskað er.


Kjörstaður opinn frá kl. 10:00  -  18:00 

Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram hjá sýslumönnum.

Yfirkjörstjórn

Skeiða- og Gnúpverjahrepps

 

 

.

 

 

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar