486-6014     486-6091
skeidgnup@skeidgnup.is

Bjóðum ykkur velkomin


á vefsíðu Skeiða- og Gnúpverjahrepps,  sem liggur austastur  í Árnessýslu, ofanverðri, með Hofsjökul í norðri, Flóahrepp í suðri, Þjórsá í austri og Stóru-Laxá og Hvítá í vestri. Íbúar voru rúml. 500 1. des. 2011.  Atvinnuvegir eru hefðbundinn landbúnaður, menntunar- og uppeldisstörf, ferðaþjónusta, verslun og iðngreinastörf. Náttúrufegurð er mikil í sveitinni, félagslíf öflugt og mannlíf blómlegt.  Skrifstofan í Árnesi er opin frá kl. 9-12 og 13-15 mánudaga-fimmtudaga.
24.02.2010

Kynningarfundur um Þjórsárstofu 1. mars í Árnesi

  • 1
  • 2
  • 3

Ágætu sveitungar,  eins og ykkur er mörgum kunnugt undirbýr sveitarfélagið í samvinnu við Landsvirkjun að koma á stofn upplýsingamiðstöð í Árnesi sem heita á Þjórsárstofa. Björn G. Björnsson  hefur séð um hönnun hennar.

Hugmyndir hans  voru kynntar á ágætis íbúafundi í haust, þær hugmyndir hafa tekið smá breytingum einkum í þá átt að Þjórsárstofa verði byggð upp á lengri tíma en til stóð í upphafi.


Einnig hefur Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt unnið með hugmyndir að breytingum á húsnæðinu í Árnesi með það í huga að þar rúmist sem best sú margþætta starfsemi sem þar á sér stað. Það er samdóma álit sveitarstjórnar og Sigríðar að húsið haldi sem best sinni upprunalegu mynd.


Félagsheimilið Árnes verður 40 ára á þessu ári og kominn á það heilmikill viðhaldstími og því kærkomið að geta nýtt hluta af þeim leigutekjum sem koma inn vegna samningsins við Landsvirkjun til að laga það sem aflaga hefur farið og auka um leið möguleika hússins á að verða sjálfbært og sá rekstur sem þar er, standi undir rekstri hússins.

Fyrirhugaðar breytingar verða kynntar á almennum fundi í Árnesi, mánudaginn  1. mars kl. 20.30.  Björn og Sigríður fara yfir framkomnar hugmyndir.


Oddviti

© 2012 Skeiða - og Gnúpverjahreppur
486-6014     486-6091     skeidgnup@skeidgnup.is
Skrefum framar